Baldur við land í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni Skessuhorns/sá

Sveitarfélög á Vesturlandi álykta um Breiðafjarðarferjuna Baldur

Á aukaaðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi síðastliðinn miðvikudag samþykktu sveitarfélög á Vesturlandi samhljóða ályktun vegna Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Í henni er tekið undir með sameiginlegri ályktun Sveitarfélagsins Stykkishólms, Vesturbyggðar og Reykhólahrepps vegna ákvörðunar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr reglubundnum siglingum um Breiðafjörð. „Þá ítrekar fundurinn fyrri ályktanir sínar um mikilvægi Baldurs fyrir samgöngur um og yfir Breiðafjörð, enda er ferjan burðarás þessara samgangna og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir íbúa, atvinnulíf, ferðaþjónustu og byggðafestu á svæðinu.