
Alexander Dagur Helgason fyrir framan húsnæðið að Smiðjuvöllum 17, Akranesi. Ljósm. óhk
Pollur Bílaþvottur færir sig um set
Eftir fimm ára starf á Esjubraut 45 á Akranesi flytur Pollur Bílaþvottur nú starfsemi sína að Smiðjuvöllum 17. Að sögn eigandans, Alexanders Dags Helgasonar, er nýja húsnæðið betur sniðið að starfseminni og gerir fyrirtækinu kleift að bæta þjónustu við viðskiptavini. Alexander stofnaði fyrirtækið aðeins 18 ára gamall árið 2021 og segir viðtökurnar frá fyrsta degi hafa farið fram úr væntingum. „Það hefur gengið mjög vel frá upphafi og við höfum fundið fyrir miklum stuðningi frá viðskiptavinum,“ segir hann. Flutningurinn kemur til vegna þess að nýr eigandi tók við húsnæðinu á Esjubraut og leigusamningi fyrirtækisins var sagt upp.