Fréttir

true

Samkeppniseftirlitið skoðar áfram verðþróun á eldsneyti

Samkeppniseftirlitið hefur kallað eftir nánari skýringum frá olíufélögum vegna gruns um að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi ekki skilað sér að fullu til neytenda. Þetta kemur fram í nýju umræðuskjali eftirlitsins um eldsneytismarkaðinn sem birt var í dag. Greining eftirlitsins sýnir að álagning á bensín hefur hækkað um 25% að raunvirði frá árinu 2022…Lesa meira

true

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur opnað fyrir tilnefningar til árlegra umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins. Viðurkenningunum er ætlað að hvetja íbúa, bændur og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum við að fegra nærumhverfið og stuðla að snyrtilegu og aðlaðandi sveitarfélagi. Hægt er að senda inn tilnefningar í fimm flokkum: snyrtilegt bændabýli, fallega lóð við íbúðarhús, snyrtilega atvinnulóð,…Lesa meira

true

Haukar höfðu betur í toppslagnum gegn Kára

Haukar unnu sannfærandi 4 – 1 sigur á Kára þegar liðin mættust í toppslag 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Með sigrinum styrktu Haukar stöðu sína á toppi deildarinnar. Sigurður Hrannar Þorsteinsson lagði grunninn að sigrinum með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik. Fyrra markið skoraði hann af vítapunktinum eftir að…Lesa meira

true

Dagskrá Írskra daga komin á fullt

Bæjarhátíðin Írskir dagar hófst nú í byrjun vikunnar á Akranesi. Dagskráin er býsna þétt allt til sunnudagsins 5. júlí. Meðal viðburða sem liðnir eru má nefna tónleika í tjaldi á Lopapeysusvæðinu; á þriðjudaginn voru Slitnir strengir með tónleika og í gær fluttu Söngdætur Akraness Óð til Írlands. Á sama tíma í gærkvöldi var Froðudiskó Arnardals…Lesa meira

true

Spáir góðum göngum af eins árs laxi

Veiðisumarið sem nú er að ganga í garð gæti skilað þokkalegum göngum af eins árs laxi ef marka má mælingar á hitastigi sjávar frá því í fyrrasumar. „Ég er að minnsta kosti ekki svartsýnn núna,“ sagði Jóhannes Guðbrandsson fiskifræðingur á Hvanneyri í viðtali við tímaritið Veiðimanninn sem nýlega kom út. Jóhannes er fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.…Lesa meira

true

Skorradal hefur verið bætt inn í Kortasjá Borgarbyggðar

Lokið hefur verið við endurbætur á kortasjá Borgarbyggðar. Með uppfærslunni hefur meðal annars verið bætt við nýjum öryggisstillingum, auk þess sem fleiri upplýsingar eru nú aðgengilegar fyrir notendur. Jafnframt hefur svæði Skorradalshrepps verið tekið inn í kortasjána í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna. Þar með eru skipulagsgögn, teikningar og aðrar landupplýsingar sem varða Skorradal nú aðgengilegar á…Lesa meira

true

Fundinn heill á húfi

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að 15 ára drengur, sem lögreglan lýsti eftir í gær, er fundinn heill á húfi. „Viljum við þakka öllum sem höfðu samband við okkur vegna málsins,“ segir í tilkynningunni.Lesa meira

true

Fjölmargir sektaðir

Í liðinni viku voru 92 ökumenn stöðvaðir af Lögreglunni á Vesturlandi og kærðir fyrir of hraðan akstur. Að auki voru 952 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá hafði einnig fíkniefni meðferðis og var sviptur ökuréttindum. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir…Lesa meira

true

Innviðafélagið fær nafnið Göng og brú ohf.

Í samræmi við lög um innviðafélag, sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní síðastliðinn, hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Félagið hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. „Markmið þess er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma,…Lesa meira

true

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal um helgina

Heim í Búðardal verður haldin dagana 3.-5. júlí nk. Dagskrá hátíðarinnar er í senn fjölbreytt, menningarleg og skemmtileg. Hátíðin er jafnan vel sótt af heimamönnum og gestum þeirra, þar á meðal brottfluttum Dalamönnum. Áherslan er lögð á fjölskylduvæna og heimatilbúna dagskrá og viðburði, bærinn er skreyttur hátt og lágt og íbúar og fyrirtæki hafa opið…Lesa meira