Fréttir

true

Hraðakstur og aðrar sektir

Í vikunni sem leið voru 106 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auk þeirra voru 513 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Þrír ökumenn voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Níu…Lesa meira

true

Sturlaugur Haraldsson ráðinn bæjarstjóri á Akranesi

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar með frjálsum á Akranesi hefur nú skrifað undir meirihlutasamstarf fyrir komandi kjörtímabil. Bæjarstjórnarfundur stendur nú yfir þar sem m.a. er kosið í embætti og formgert nýtt meirihlutasamstarf. Þá var opinberað í dag að Sturlaugur Haraldsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri og tekur hann formlega við sem slíkur 19. ágúst næstkomandi. Steinar Adolfsson…Lesa meira

true

Nýtt listaverk orðið til á Akranesi

Síðdegis í dag lauk listamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, við gerð málverks á gafli húss sem Eymar Einarsson fyrrum útgerðarmaður á á Breiðinni á Akranesi. Að sögn Baska kostaði Eymar gerð verksins, en á því gefur að líta Ebba AK-37 sem Eymar gerði út lengi. Verkið sem er í anda fyrri verka listamannsins sómir sér…Lesa meira

true

Níu laxar í opnun Þverár í morgun

„Þetta byrjaði vel. Það komu níu laxar á land í morgun og við Andrés fengum þrjá þeirra. Kirkjustrengurinn gaf vel,“ sagði Aðalsteinn Pétursson við opnun Þverár nú í morgun. Hver laxveiðiáin af annarri opnar þessa dagana og fyrstu dagarnir virðast almennt vera að gefa vel. „Það veiddust þrír á undan okkar í Kirkjustrengnum og við…Lesa meira

true

Ný hannyrðaverslun opnuð á Akranesi

Kynntust í gegnum prjónaheiminn Síðastliðinn sunnudag var opnuð ný hannyrðaverslun að Stekkjarholti 8-10 á Akranesi, en hún er opin á þriðju- og fimmtudögum frá klukkan 17-19 og á sunnudögum frá kl. 12-14. Verslunina reka tvær ungar og framtakssamar konur; Fanney Rún Ágústsdóttir og Ína Sigrún Rúnarsdóttir, en þær kynntust í gegnum sameiginlegan áhuga á hannyrðum,…Lesa meira

true

Ferjuna til baka ella segi ráðherra af sér

Hrundið hefur verið af stað undirskriftasöfnun á island.is undir yfirskriftinni: „Ferjuna Baldur strax til baka í Breiðafjörð.“ Nú þegar hefur á sjötta hundrað skrifað undir áskorunina, en hún verður opin til 15. júní. Ábyrgðarmaður er Óskar Eyþórsson. Yfirskrift söfnunarinnar er þannig: „Við sem skrifum undir þennan lista krefjumst þess að ákvörðun um að taka ferjuna…Lesa meira

true

Saga ljóshærðu hetjunnar rifjuð upp hjá Feyenoord

Á stuðningsmannasíðu knattspyrnuliðsins Feyenoord í Hollandi var nýlega minnst á Pétur Pétursson knappstyrnumann og saga hans með félaginu rifjuð upp. Pétur varð goðsögn með liðinu, en með því lék hann í tvígang; árin 1978–1981 og aftir 1984–1985. Pétur spilaði 107 leiki með liðinu, skoraði í þeim 60 mörk, varð bikarmeistari 1980 og skoraði sjálfur tvö…Lesa meira

true

Ólík mál komu til kasta lögreglu

Ýmis mál komu til kasta Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Þannig var eitt skemmdarverk tilkynnt til lögreglu. Tveir einstaklingar tilkynntu um fjársvik og eitt umferðarslys varð í vikunni. Einn var kærður fyrir vörslu fíkniefna og annar fyrir þjófnað. Þá tók lögregla þátt í aðgerðum vegna bátsbruna á Breiðafirði, sem sagt er frá í…Lesa meira

true

Stýrihópur vegna almyrkva heimsótti Vesturland

Markaðsstofa Vesturlands skipulagði vettvangsferð á Vesturlandi fyrir stýrihóp Stjórnarráðsins vegna almyrkvans 12. ágúst í sumar. Hlutverk stýrihópsins er að afla upplýsinga og hafa yfirsýn yfir verkþætti sem tengjast atburðinum og tryggja samræmda nálgun og upplýsingagjöf ráðuneyta og stofnana auk sveitarfélaga. Hópurinn var á ferðinni í gær. Viktor Ingi Jakobsson verkefnisstjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá Borgarbyggð…Lesa meira

true

Hamarsvöllur í Borgarnesi færir út kvíarnar – ítarleg umfjöllun

Fjölgun iðkenda, nýtt klúbbhús og stækkun golfvallarins meðal helstu áskorana Það vekur athygli að golf hefur á síðustu árum styrkt stöðu sína mjög og er nú ein stærsta einstaklingsíþrótt landsins. Knattspyrnan heldur þó enn efsta sætinu með nokkrum yfirburðum, en merkilegt nokk þá eru fimleikar þriðja fjölmennasta íþróttagreinin. Þar á eftir koma svo hestaíþróttir og…Lesa meira