Fréttir

true

Síðasti skólanefndarfundur skólaársins

Skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga hélt síðasta fund annarinnar mánudaginn 1. júní þar sem hefðbundin fundarstörf fóru fram. Þetta var síðasti fundur Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra Grundarfjarðar en hún hefur setið í skólanefnd frá stofnun skólans árið 2004. Hún lætur nú af embætti bæjarstjóra og kveður því skólanefndina eftir 22 ára samfellt starf. FSN hefur skipað stóran sess…Lesa meira

true

Ný Borgfirðingabók er komin út

Borgfirðingabók 2026 kom út í lok maí. Um er að ræða 27. árgang bókarinnar sem er ársrit Sögufélags Borgarfjarðar. Vinna við bókina gekk vel eins og undanfarin ár. Fjöldi greina og þar með höfunda er meiri en oftast hefur verið. Segir það að fjölbreytnin er með meira móti og er það vel. Litið er til…Lesa meira

true

Nýr meirihluti og Unnur Brá Konráðsdóttir verður sveitarstjóri

Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn undirrituðu síðdegis í dag málefnasamning og mynda nýjan meirihluta í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 29,3% fylgi og þrjá fulltrúa kjörna í sveitarstjórn. Borgarbyggðarlistinn fékk 23,5% fylgi og tvo fulltrúa kjörna. Saman mynda flokkarnir fimm manna meirihluta í sveitarstjórn. Við sama tækifæri í dag var skrifað undir…Lesa meira

true

Gatnaframkvæmdir í kvöld við Grundahverfi á Kjalarnesi

Í kvöld, þriðjudaginn 2. júní og aðfaranótt 3. júní er stefnt á að malbika kafla á Vesturlandsvegi við Grundahverfi á Kjalarnesi. Umferðastýring verður á verksvæðinu á meðan framkvæmdum stendur. Kaflinn er 980m langur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 í kvöld og fram til 07:00 á…Lesa meira

true

Nýja flotbryggjan sett niður

Það var mikið um að vera á höfninni í Grundarfirði í morgun þegar starfsmenn frá Köfunarþjónustunni, BB og sonum og Ragnari og Ásgeir voru að vinna við að koma nýrri flotbryggju á flot. Bryggjan er viðbót við núverandi aðstæður og mun bæta til muna aðkomu báta frá skemmtiferðaskipum. Nú geta átta bátar lagt að í…Lesa meira

true

Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur gengið frá ráðningu á Lilju Björg Ágústsdóttur í stöðu sveitarstjóra. Lilja Björg er fædd og uppalin í Dölunum og bjó þar fram að framhaldsskólaaldri. Hún er með meistaragráðu í lögfræði (ML) og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, auk kennaramenntunar frá Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt aflað sér réttinda til…Lesa meira

true

Skagakonur með naumt tap gegn Keflavík

Eftir góðan leik á heimavelli 25. maí síðastliðinn, þar sem Skagakonur létu Tindastól frá Sauðárkróki „finna til tevatnsins“ og unnu stórsigur 5-0, þá töpuðu þær naumlega útileik móti Keflavík laugardaginn 30. maí á HS Orku vellinum 2-1. Eftir leikinn eru þær rétt fyrir neðan miðja deild, í sjötta sæti með sex stig, en það eru…Lesa meira

true

Vit-Hit leikarnir í sundi fóru fram á Akranesi

Stærstu Vit-Hit leikarnir í sundi frá upphafi voru haldnir um liðna helgi á Jaðarsbökkum. Alls tóku 397 sundmenn þátt í mótinu sem stungu sér alls 1.897 sinnum til sunds sem gerir þetta að langstærsta barna- og unglingamóti í sundi sem haldið hefur verið á Íslandi í ár. Sundfélag Hafnarfjarðar stóð uppi sem sigurvegari í liðakeppninni…Lesa meira

true

Fylgi flokka breytist lítið milli kannana

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem gerður var fyrir Ríkisútvarpið í lok maí, er lítil hreyfing á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi frá síðustu könnun. Samfylking mælist stærst með 22,7% og næði tveimur þingmönnum í NV kjördæmi. Miðflokkur er næststærstur í kjördæminu, með 20,4%, og fengi sömuleiðis tvo þingmenn. Sjálfstæðisflokkur mælist nú með 18,6% og fengi einn…Lesa meira