
Gatnaframkvæmdir í kvöld við Grundahverfi á Kjalarnesi
Í kvöld, þriðjudaginn 2. júní og aðfaranótt 3. júní er stefnt á að malbika kafla á Vesturlandsvegi við Grundahverfi á Kjalarnesi. Umferðastýring verður á verksvæðinu á meðan framkvæmdum stendur. Kaflinn er 980m langur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 í kvöld og fram til 07:00 á miðvikudagsmorgun. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu.