
Nýr meirihluti og Unnur Brá Konráðsdóttir verður sveitarstjóri
Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn undirrituðu síðdegis í dag málefnasamning og mynda nýjan meirihluta í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 29,3% fylgi og þrjá fulltrúa kjörna í sveitarstjórn. Borgarbyggðarlistinn fékk 23,5% fylgi og tvo fulltrúa kjörna. Saman mynda flokkarnir fimm manna meirihluta í sveitarstjórn. Við sama tækifæri í dag var skrifað undir ráðningarsamning og tekur Unnur Brá Konráðsdóttur, fyrrverandi alþingismaður og forseta Alþingis, við starfi sveitarstjóra 12. júní næstkomandi.
Samkvæmt samkomulagi flokkanna verður Sigurður Guðmundsson, oddviti D-lista, formaður byggðarráðs og Jovana Pavlovic oddviti A-lista forseti sveitarstjórnar. Samstarf flokkanna hefur verið rammað inn í málefnasamning þar sem lögð er áhersla á að byggja upp sterkt og sjálfbært samfélag þar sem velferð íbúa og ábyrg fjármál fara saman. „Markmið meirihlutans er að tryggja skýra stjórnun, stöðugleika og aukið traust milli íbúa og kjörinna fulltrúa. Meirihlutinn mun vinna saman að því að skapa samfélag þar sem allir íbúar sveitarfélagsins njóta jafnræðis, hvort sem er í dreifbýli eða þéttbýli. Samstarf, gagnsæi og ábyrgð eru lykillinn að árangri á komandi kjörtímabili,“ segir í tilkynningu.
Sigurður Guðmundsson oddviti Sjálfstæðisflokks þakkar það traust sem íbúar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sýndu flokknum. „Fram undan eru spennandi tímar þar sem við ætlum að vinna saman að sameiningu sveitarfélagana, hlusta á íbúa og koma framfara málum í framkvæmd. Borgarbyggð og Skorradalur er gott samfélag og með málefnasamningi á milli D- og A lista er ekki eftir neinu að bíða með að hefjast handa við að gera gott samfélag enn betra,“ sagði Sigurður.
„Við þökkum íbúum Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt. Fram undan eru mikilvæg verkefni og spennandi tækifæri þar sem við ætlum að vinna saman að því að sameining sveitarfélaganna takist vel og skili raunverulegum ávinningi fyrir íbúa. Við viljum eiga gott samtal við íbúa, hlusta á ólíkar raddir og vinna að þeim framfaramálum sem skipta samfélagið mestu máli. Borgarbyggð og Skorradalur eru sterk samfélög með ríka sögu, öflugt mannlíf og mikla möguleika. Með málefnasamningi D-lista og A-lista er lagður traustur grunnur að farsælu samstarfi til framtíðar, þar sem markmiðið er að efla þjónustu, styrkja samfélagið og skapa enn betri tækifæri fyrir íbúa um allt sveitarfélagið,“ segir Jovana Pavlovic oddviti Borgarbyggðarlistans.
Reynslumikil úr stjórnsýslunni
Unnur Brá Konráðsdóttir sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 2009–2017 og gegndi embætti forseta Alþingis árið 2017. Hún hefur frá því þingmennsku lauk gegnt margvíslegum trúnaðar- og stjórnunarstörfum. Hún var aðstoðarmaður ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur árin 2018–2020 og starfaði sem aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á árunum 2022–2024. Unnur Brá starfaði sem formaður stýrihóps um framkvæmdir við nýjan Landspítala 2020-2022. Áður en hún tók sæti á Alþingi starfaði Unnur Brá sem sveitarstjóri Rangárþings eystra og var jafnframt kjörin fulltrúi í sveitarstjórn. Unnur Brá er lögfræðingur að mennt og lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún hefur öðlast réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum og stundað meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
„Ég þakka fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka mjög til að takast á við spennandi verkefni í góðu samstarfi við íbúa sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps,“ sagði Unnur Brá síðdegis í dag þar sem skrifað var undir samningana á þaki Ráðhúss Borgarbyggðar.

