Ný Borgfirðingabók er komin út

Borgfirðingabók 2026 kom út í lok maí. Um er að ræða 27. árgang bókarinnar sem er ársrit Sögufélags Borgarfjarðar.

Vinna við bókina gekk vel eins og undanfarin ár. Fjöldi greina og þar með höfunda er meiri en oftast hefur verið. Segir það að fjölbreytnin er með meira móti og er það vel. Litið er til nokkurra þátta við efnisval svo tryggja megi sem flestum lestrarefni sem hentar. Sem dæmi um efni má nefna grein um Húsafellsmótin eftir Jón G. Guðbjörnsson, grein sem kallast Furðuverk með fornar rætur eftir Sigríði Sigurðardóttur, þar sem fjallað er um útsaum og tvær litlar greinar eftir Emilíu Ingibjörgu Valmundardóttur og Mattías Bjarma Ómarsson þar sem þau fjalla um framtíð sína.

Ritnefnd vill þakka öllum þeim sem lagt hafa til efni í bókina og þar með ómælda vinnu til samfélagsins. Jafnframt er höfundum þökkuð ánægjuleg og gefandi samskipti í tengslum við gerð bókarinnar. Einnig eru oft ánægjuleg samskipti við lesendur. Það gladdi óneitanlega að frétta að nemandi á Kleppjárnsreykjum bíður með óþreyju eftir næstu bók, því hann velur Borgfirðingabók sem fyrsta kost til skólalesturs.

Sem ritlaun fá höfundar eitt fríeintak Borgfirðingabókar – auk þess gefst þeim kostur á eintökum hennar á kosnaðarverði og hvetjum við þá til að nýta sér það.

Áskrifendahópur Borgfirðingabókar er burðarás í útgáfu bókarinnar og þakkar félagið þeim sérstaklega fyrir stuðninginn. Til að nálgast upplýsingar um félagið og útgefið efni þess, er hægt að fara á fésbókarsíðuna Sögufélag Borgarfjarðar – Borgfirskar æviskrár. Bókapantanir má gera í skilaboðum á síðunni, eða senda tölvupóst á frodastadir@gmail.com eða hringja í Guðmund Þ. Brynjúlfsson í síma 617-7317 eða Ingibjörgu Daníelsdóttur í síma 894-8108.

Í ritnefnd eru Guðmundur Þór Brynjúlfsson, Ingibjörg Daníelsdóttir og Marteinn Njálsson.

-fréttatilkynning