Fréttir

true

Sjálfstæðisflokkur stærstur í Borgarbyggð samkvæmt fyrstu tölum

Búið er að telja 1.564 atkvæði í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, eða rúmlega helming atkvæða. Atkvæði hafa fallið þannig: A – listi Borgarbyggðarlistans 341 atkvæði (22,5%) B – listi Framsóknarflokks 396 atkvæði (26,1%) D – listi Sjálfstæðisflokks 450 atkvæði (29,7%) M – listi Miðflokks 329 atkvæði (21,7%) Auðir seðlar 47 Ógildir seðlar 1Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur stærstur á Akranesi

Þegar búið var að telja rúmlega fjórðung atkvæða á Akranesi, alls 1.646, er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 34,9% atkvæði sem dygði til að fá fjóra menn í bæjarstjórn, en flokkurinn hefur nú þrjá. Vegna dreifingar atkvæða bætir flokkurinn við sig manni, þrátt fyrir að fá prósentu minna fylgi samkvæmt þessum fyrstu tölum. Samfylking er næststærsti flokkurinn,…Lesa meira

true

Raddir okkar allra sigurvegari á Reykhólum

Í Reykhólahreppi voru tvö framboð til sveitarstjórnar í kosningunum í dag. R-listi, Raddir okkar allra, hlaut 113 atkvæði eða 71,5% og fjóra menn kjörna af fimm í sveitarstjórn. S-listi fékk 45 atkvæði eða 28,5% og einn mann kjörinn. Fyrir R-Lista setjast í sveitarstjórn Árný Huld Haraldsdóttir Bakka, Embla Dögg Bachmann Reykhólum, Kjartan Þór Ragnarsson Reykhólum…Lesa meira

true

Hann kom í hlaðið á hvítum hesti

Menn fara ýmsar leiðir á kjörstað. Þórður Sigurðsson íbúi í Borgarbyggð mætti í dag á kjörstað í Borgarnesi á gráum gæðingi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Engum sögum fer af hvað Þórður kaus.Lesa meira

true

Dræmari kjörsókn í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradals

Klukkan 18 í kvöld höfðu 51% greitt atkvæði í kosningunum í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Fyrir réttum fjórum árum var kjörsókn í Borgarbyggð á sama tíma 52%, eða prósentu hærri en hún er nú. Sveinbjörn Eyjólfsson formaður yfirkjörstjórnar staðfestir þessar tölur í samtali við Skessuhorn. Fjórir listar bjóða fram krafta sína fyrir þessar kosningar…Lesa meira

true

Einnig kosið um afstöðu til sameiningar

Í sveitarfélaginu Hvalfjarðarveit eru tveir framboðslistar í kjöri; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar fer samhliða fram óbindandi viðhorfskönnun, meðal kjörgengra íbúa, um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög. Kosið er í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 í Melahverfi og lýkur kjörfundi klukkan 21:00 í kvöld.Lesa meira

true

Góð kjörsókn í Grundarfirði

Klukkan 17 í dag höfðu 60,4% á kjörskrá í Grundarfjarðarbæ greitt atkvæði sitt. Alls eru 639 á kjörskrá og höfðu 291 greitt atkvæði á kjörstað í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þá höfðu 95 greitt atkvæði utan kjörfundar, samkvæmt upplýsingum frá formanni kjörstjórnar. Það var fréttavefur Ríkisútvarpsins sem greindi frá. Tveir listar eru í framboði í sveitarfélaginu: B-listi…Lesa meira

true

Vöruðu við að gervigreind gæfi rangar upplýsingar

Ágæt og upplýsandi yfirlýsing er frá yfirkjörstjórn Dalabyggðar á vef sveitarfélagsins; dalir.is. Þar er m.a. hægt að sjá hvar og hvenær er kosið, hverjir eru í framboði og hverjir ekki. Persónukjör er viðhaft í Dölum líkt og fyrir fjórum árum. Í tilkynningunni er fólk varað við að styðjast við gervigreind – og segir: „Af gefnu…Lesa meira

true

Kjörsókn mun meiri á Akranesi en fyrir fjórum árum

Klukkan 17:00 í dag höfðu 2.826 kosið í Grundaskóla á Akranesi. Kjörsókn var þá 44,91%. Það er mun meiri kjörsókn en var fyrir fjórum árum en þá var hún 39,8% á sama tíma. Kjörsóknin nú er hins vegar á pari við kosningarnar 2018. Einar Gunnar Einarsson formaður kjörstjórnar á Akranesi segir í samtali við Skessuhorn…Lesa meira

true

Síðasti kjörfundurinn í Skorradalshreppi

Kosningar í dag til sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps marka um leið endalok sérstakrar kjördeildar í Skorradal. Í hreppnum eru 59 á kjörskrá að þessu sinni. Vel fór á með þeim Ástríði Guðmundsdóttur, Gunnari Rögnvaldssyni og Davíð Péturssyni þegar blaðamaður Skessuhorn leit þar við um nónbil í dag. Kjörsókn í hinu sameinuðu sveitarfélagi var þá…Lesa meira