
Dræmari kjörsókn í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradals
Klukkan 18 í kvöld höfðu 51% greitt atkvæði í kosningunum í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Fyrir réttum fjórum árum var kjörsókn í Borgarbyggð á sama tíma 52%, eða prósentu hærri en hún er nú. Sveinbjörn Eyjólfsson formaður yfirkjörstjórnar staðfestir þessar tölur í samtali við Skessuhorn.
Fjórir listar bjóða fram krafta sína fyrir þessar kosningar í sameinuðu sveitarfélagi; Miðflokkur og Borgarbyggðarlisti koma nýir inn í stað Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs - og Samfylkingar og Viðreisnar sem buðu fram sameiginlega. Áfram eru Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur í kjöri. Á liðnu kjörtímabili var Framsóknarflokkur í hreinum meirihluta í Borgarbyggð, hlaut rúm 49% og fimm menn í sveitarstjórn. Í Skorradalshreppi var viðhaft persónukjör við síðustu kosningar.