
Sjálfstæðisflokkur stærstur á Akranesi
Þegar búið var að telja rúmlega fjórðung atkvæða á Akranesi, alls 1.646, er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 34,9% atkvæði sem dygði til að fá fjóra menn í bæjarstjórn, en flokkurinn hefur nú þrjá. Vegna dreifingar atkvæða bætir flokkurinn við sig manni, þrátt fyrir að fá prósentu minna fylgi samkvæmt þessum fyrstu tölum. Samfylking er næststærsti flokkurinn, fær 23,3% og tvo menn í bæjarstjórn. Framsókn með frjálsum fengi 22,4% atkvæða og tvo menn. Þá fær Viðreisn 10,2% sem dygði til að fá einn mann í bæjarstjórn.