Hann kom í hlaðið á hvítum hesti

Menn fara ýmsar leiðir á kjörstað. Þórður Sigurðsson íbúi í Borgarbyggð mætti í dag á kjörstað í Borgarnesi á hvítum gæðingi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Engum sögum fer af hvað Þórður kaus.