Fréttir

true

ÍA Meyjar í keilu spiluðu sig upp í fyrstu deild

ÍA Meyjur í keilu komust í umspil um að komast upp í 1. deild kvenna á móti fyrr í vikunni. Þær voru í 2. sæti í annarri deild og öttu kappi við bikarmeistarana ÍR-Píur úr 1. deild sem áttu á hættu að falla niður um deild. Í fyrri viðureigninni náðu ÍA Meyjur einungis í 3,5…Lesa meira

true

Engin sumarvinna í boði fyrir börn í áttunda bekk

Ásþór Sædal Birgisson, foreldri 14 ára unglings á Akranesi, vekur athygli á því á FB síðu íbúa að í dag hafi foreldrum barna í 8. bekk borist bréf frá forstöðumanni Vinnuskólans hjá Akraneskaupstað. Í því kemur fram að ákveðið hafi verið að afnema vinnu í Vinnuskólanum fyrir þennan aldurshóp í sumar þar sem ekki hafi…Lesa meira

true

Hafró gefur út veiðiráðgjöf fyrir 150 langreyðar

Allt útlit er fyrir að hvalveiðar verði að nýju stundaðar í sumar. Hafrannsóknastofnun og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið gaf í morgun út veiðiráðgjöf vegna veiða á langreyði. Á vertíðinni í sumar er ráðlagt að veiða megi allt að 150 langreyðar, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland – Vestur-Ísland og 34 dýr á svæðinu Austur-Ísland – Færeyjar.…Lesa meira

true

HugHirzla og Hamskipti í 3veggjun listrými á Hellissandi

Inga Harðardóttir myndmenntakennari við Grunnskóla Snæfellsbæjar opnaði sýningu 11. apríl síðastliðinn í 3 Veggjum listrými á Hellissandi. Sýningin nefnist HugHirzla og Hamskipti og stendur til 3. maí. Inga vinnur mikið með teikningu og á sýningunni eru teikningar sem sækja innblástur í þjóðsögur um hamskiptinga og verk þar sem teikningin er notuð til að skrá nánasta…Lesa meira

true

Ástand vega sýnir dýrkeypta innviðaskuld

Mikilvægt er að vegir séu í góðu ásigkomulagi til að tryggja sem best öryggi vegfarenda. All víða um land eru vegir nú komnir að þolmörkum og miðað við tilkynningar á vef Vegagerðarinnar er mikið af holum í vegum. Unnið er mjög víða á Vesturlandi við holuviðgerðir og starfsmenn að vinna inni á vegunum. Eru vegfarendur…Lesa meira

true

Síðustu forvöð að gera klárt fyrir strandveiðar

Strandveiðar hefjast við landið mánudaginn 4. maí. Margir útgerðarmenn hafa að undanförnu unnið við viðhald og viðgerðir á bátum sínum. Í dag var Jaróslav SH-460 tekinn á land í Ólafsvík til þrifa, botnmálunar og minniháttar viðhalds. Pétur Kristjánsson gerir bátinn út en á myndinni eru Páll Svansson og Svanur Tómasson frá TS vélaleigu sem aðstoðuðu…Lesa meira

true

Telja nauðsynlegt að efla nám í ferðaþjónustu

Í nýrri skýrslu um uppbyggingu náms í ferðaþjónustu kemur fram að þörf er á heildarsýn og markvissum aðgerðum til að styrkja menntun í greininni. Skýrslan er unnin í tengslum við ferðamálastefnu til 2030, en megininntak þeirrar stefnu er áhersla á sjálfbærni á öllum sviðum, samkeppnishæfni og samfélagslegan ávinning á landsvísu. Í skýrslunni kemur fram að…Lesa meira

true

Leita ferðamanns í Þjórsárdal

Björgunarsveitir á Suðurlandi ásamt lögreglu og þyrlu Landhelgisgæslunnar hófu í gærkvöldi leit að erlendum ferðamanni á svæðinu í kringum Háafoss í Þjórsárdal, en án árangurs. Undir miðnætti í gærkvöldi voru svo björgunarsveitir af Vesturlandi kallaðar til aðstoðar félögum sínum á Suðurlandi og gert ráð fyrir að þær héldu til leitar í morgun. Óskað var eftir…Lesa meira

true

Þrautabraut haldin í Faxaborg

Þrautabrautar, djús- og bjór tölt var haldið í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi síðastliðið laugardagskvöld. Það voru Ásdís Eva Halldórsdóttir og Katrín Einarsdóttir sem tóku sig til og héldu mótið. Fréttin hefur verið uppfærð og hér með leiðrétt að það var ekki hestamannafélagið Borgfirðingum sem stóð að mótshaldinu. Mjög skemmtileg kvöldstund og mörg mögnuð tilþrif sem…Lesa meira

true

Annir í umferðareftirliti

Í vikunni sem leið voru 110 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 806 ökumenn voru auk þess myndaðir við að aka of hratt af myndavélabifreið embættisins. Tveir voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur og fimm stöðvaðir fyrir að hafa ekki tilskilin réttindi til aksturs bifreiðar.…Lesa meira