Fréttir

true

Fjalla um örnefni og fuglalíf við Breiðafjörð

Kynningarfundur um örnefni og fuglalíf á eyjum og skerjum í Breiðafirði veður haldinn í dag, fimmtudaginn 9. apríl kl. 14, í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Náttúrufræðistofnun og Breiðafjarðarnefnd standa fyrir fundinum. Fundinum verður jafnframt streymt, en tengil á hann má finna á heimasíðu Dalabyggðar. Á fundinum verða flutt erindi um örnefni á eyjum Breiðafjarðar og lífríki…Lesa meira

true

Skýli skemmt og ólögráða á vínveitingastað

Lögreglan á Vesturlandi fór í eftirlit með vínveitingastöðum í vikunni sem leið og kom þar í ljós að tvö ungmenni undir 18 ára aldri voru inni á vínveitingastað í umdæminu á þeim tíma sem það var ekki heimilt. Þá var strætóskýli skemmt á Akranesi um páskana og við hlið þess lá slökkvitæki sem líklega hafði…Lesa meira

true

„Það varð að ákveðnum lífsstíl að mennta sig meðfram vinnu og fjölskyldulífi“

Rætt við Jóhönnu Skúladóttur, fráfarandi héraðsskjalavörð Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar Um síðustu mánaðamót lét af störfum Jóhanna Skúladóttir, héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar, eftir ríflega tveggja áratuga starf. Var Jóhönnu haldið veglegt kveðjuhóf föstudaginn 27. mars og henni þökkuð góð störf. Sjötug varð Jóhanna tveimur dögum síðar, 29. mars. „Ég mæli nú ekki endilega með því að hætta að…Lesa meira

true

Borgarbyggðarlistinn, listi félagshyggjufólks, býður fram

Fjölmennur fundur félagshyggjufólks í Borgarbyggð var haldið að Hótel Vesturlandi í Borgarnesi í gærkvöldi. Á fundinum var samþykkt að leggja fram framboðslista fyrir sveitastjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalashrepps undir nafninu Borgarbyggðarlistinn og notast yrði við listabókstafinn A. Einnig var samþykktur framboðslisti og er hann í heild sinni sem hér segir: Nr. 1 Jovana…Lesa meira

true

Leita eftir aðstoðarskólastjóra

Tónlistarskóli Stykkishólms óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra. Tónlistarskólinn er rekinn samhliða Grunnskólanum í Stykkishólmi og skipar mikilvægan sess í menningar- og skólastarfi sveitarfélagsins. Um fullt starf er að ræða sem felur í sér 50% kennslu og 50% stjórnun. Hlutfallið getur verið sveigjanlegt með tilliti til þarfa skólans, sem og hæfni og reynslu þess sem ráðinn…Lesa meira

true

Mitt atkvæði – Mín rödd

Í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. hefur Grundarfjarðarbær í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – Mín rödd, sem stutt er af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ákveðið að halda vinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna til þess að auka kosningaþáttöku í kosningunum í vor. Markmið vinnustofunnar er að auka þekkingu innflytjenda á sveitarstjórnarkosningum og hlutverki sveitarfélaga.…Lesa meira

true

Listaverkaskrá sett á laggirnar í Snæfellsbæ

Listaverk gegna djúpstæðu og fjölbreyttu hlutverki í samfélögum manna. Þau eru ekki eingöngu til skrauts, heldur móta þau hugsun okkar, líðan og hvernig við tengjumst hvert öðru. Þau vekja upp spurningar, ögra viðhorfum okkar og fær okkur til að hugleiða á dýptina um lífið og tilveruna. Hvort sem það er tónlist, myndlist, leikhús eða handverk…Lesa meira

true

Ljóslaust vindmælimastur á Grjóthálsi hættulegt flugöryggi

Undanfarnar þrjár vikur hefur ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði. Mastrið var sett upp í byrjun ágúst á síðasta ári og er ætlað að mæla vind vegna hugmynda um vindmylluver í landi Hafþórsstaða og Sigmundarstaða. Hrjónur ehf. er félag landeigenda sem skráð er fyrir vindmælingunum. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns…Lesa meira

true

Íslandsglíman í fyrsta skipti í Búðardal

Laugardaginn 11. apríl klukkan 14 hefst 115. Íslandsglíman í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þar mun fremsta glímufólk landsins etja kappi og reyna að ná í eftirsóttasta verðlaunagrip glímunnar. Í kvennaflokki er keppt um Freyjumenið en sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Glímudrottning Íslands. Í karlaflokki er keppt um Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip á Íslandi, og hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið Glímukóngur…Lesa meira