
Frá Stykkishólmi. Ljósm. gj.
Leita eftir aðstoðarskólastjóra
Tónlistarskóli Stykkishólms óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra. Tónlistarskólinn er rekinn samhliða Grunnskólanum í Stykkishólmi og skipar mikilvægan sess í menningar- og skólastarfi sveitarfélagsins. Um fullt starf er að ræða sem felur í sér 50% kennslu og 50% stjórnun. Hlutfallið getur verið sveigjanlegt með tilliti til þarfa skólans, sem og hæfni og reynslu þess sem ráðinn verður. Um 110 nemendur á öllum aldri stunda tónlistarnám við skólann.