Mitt atkvæði – Mín rödd

Í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. hefur Grundarfjarðarbær í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – Mín rödd, sem stutt er af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ákveðið að halda vinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna til þess að auka kosningaþáttöku í kosningunum í vor. Markmið vinnustofunnar er að auka þekkingu innflytjenda á sveitarstjórnarkosningum og hlutverki sveitarfélaga.