
Ljóslaust vindmælimastur á Grjóthálsi hættulegt flugöryggi
Undanfarnar þrjár vikur hefur ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði. Mastrið var sett upp í byrjun ágúst á síðasta ári og er ætlað að mæla vind vegna hugmynda um vindmylluver í landi Hafþórsstaða og Sigmundarstaða. Hrjónur ehf. er félag landeigenda sem skráð er fyrir vindmælingunum.
Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns tóku íbúar á svæðinu eftir því að hindrunarljósið slokknaði eftir eldingaveður sem gekk yfir fimmtudaginn 19. mars. Ein af forsendum þess að framkvæmdaleyfi var gefið út til uppsetningar mælimastursins var sú að á toppi þess væri blikkandi viðvörunarljós. Það er gert til að auðvelda flugmönnum í sjónflugi að sjá mastrið, en Grjótháls er meðal annars þekkt leið þyrla í sjúkraflugi. Þá er samkvæmt heimildum Skessuhorns ekki búið að setja mælimastrið inn í flugrita og vantar auk þess að merkja inn á sjónflugskort. Þetta tvennt eykur enn mikilvægi þess að hindrunarljós sé til staðar á toppi þess.
Skessuhorn hefur fyrir því heimildir að fjölmargir hafi sent ábendingar um ljósleysi mælimastursins til Samöngustofu. Þeirra á meðal eru atvinnuflugmenn.