
Fjalla um örnefni og fuglalíf við Breiðafjörð
Kynningarfundur um örnefni og fuglalíf á eyjum og skerjum í Breiðafirði veður haldinn í dag, fimmtudaginn 9. apríl kl. 14, í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Náttúrufræðistofnun og Breiðafjarðarnefnd standa fyrir fundinum. Fundinum verður jafnframt streymt, en tengil á hann má finna á heimasíðu Dalabyggðar.