
Borgarbyggðarlistinn, listi félagshyggjufólks, býður fram
Fjölmennur fundur félagshyggjufólks í Borgarbyggð var haldið að Hótel Vesturlandi í Borgarnesi í gærkvöldi. Á fundinum var samþykkt að leggja fram framboðslista fyrir sveitastjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalashrepps undir nafninu Borgarbyggðarlistinn og notast yrði við listabókstafinn A.
Einnig var samþykktur framboðslisti og er hann í heild sinni sem hér segir:
Nr. 1 Jovana Pavlović, stjórnmála- og mannfræðingur, Borgarnesi
Nr. 2 Hermann B. Valsson, lýðheilsufræðingur og grunnskólakennari, Hvanneyri
Nr. 3 Guðrún Vala Elísdóttir, framkvæmdastjóri, Borgarnesi
Nr. 4 Bjarni Bequette, framkvæmdastjóri, Borgarnesi
Nr 5 Friðrik Aspelund, skógfræðingur og leiðsögumaður, Hvanneyri
Nr. 6 Sólveig Hallsteinsdóttir, verkefnastjóri, Borgarnesi
Nr. 7 Lárus Elíasson, skógarbóndi, Rauðsgili
Nr. 8 Þorsteinn Eyþórsson, eldri borgari, Borgarnesi
Nr. 9 Melkorka Gunnarsdóttir, bóndi og landbúnaðarfræðingur, Steinahlíð.
Nr. 10 Hákon Konráðsson, félagsráðgjafi, Borgarnesi
Nr. 11 Signý Óskarsdóttir, doktorsnemi í menntavísindum, Borgarnesi
Nr. 12 Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir, sjúkraþjálfari, Borgarnesi
Nr. 13 Kristín Markúsdóttir, íþróttafræðingur og stuðningsfulltrúi, Borgarnesi
Nr. 14 Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, öryrki, Borgarnesi.
Nr. 15 Guðmundur Freyr Kristbergsson, geita- og ferðaþjónustubóndi, Háafelli.
Nr. 16 Cristina Isabelle Cotofana, sveppabóndi og rannsóknarmaður, Bæ 2.
Nr. 17 Ingibjörg Daníelsdóttir, bóndi og eftirlaunaþegi, Fróðastöðum.
Nr. 18 Sigurður Helgason, eldri borgari, Hraunholtum.
