
Fyrir helgi kom í ljós að stóran búrhval hafði rekið á land í flæðarmálinu við Írskra brunn við Gufuskála á Snæfellsnesi. Svo virðist sem nokkuð sé síðan hvalurinn drapst. Fjölmargir hafa lagt leið sína til þess að líta augum þessa risastóru skepnu. Ekki stendur til að fjarlægja hræið úr fjörunni, heldur láta náttúruna um það.…Lesa meira








