Fréttir

true

Framboðslisti Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit

Íbúahreyfing Hvalfjarðarsveitar hefur birt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Kosið var persónukjöri í sveitarfélaginu fyrir fjórum árum. Þetta er fyrsti listinn sem lagður er fram. Á lista Íbúahreyfingarinnar eru alls 14 nöfn, en efstu þrjú sæti skipa: Þóra Margrét Júlíusdóttir skipulagsfræðingur Svarfhóli í fyrsta sæti, Baldur Þór Ketilsson kerfisfræðingur Leyni í öðru og…Lesa meira

true

Víða ekkert ferðaveður í dag – english below

Ábending til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar: „Austan hríðarbylur gengur yfir landið í dag, mánudag, sem hefur áhrif á færð og vegalokanir víða um land. Vindur nær stormstyrk í öllum landshlutum og jafnvel roki sunnanlands. Vegfarendur eru hvattir til að sýna gát og kynna sér aðstæður, viðvaranir og lokanir áður en lagt er í ferðalög.“ Blizzard…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin úr leik í úrslitakeppninni

Vesturlandsliðin Snæfell og Skallagrímur spiluðu í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta, um laust sæti í Bónusdeildinni, fyrir og um páskana. Skemmst er frá því að segja að bæði lið máttu játa sig sigruð í öllum sínum leikjum. Breiðablik vann Skallagrím í öllum þremur leikjunum. Sama var uppi á tengingnum í leikjum Sindra á Höfn…Lesa meira

true

Leggja fram skoðanakönnun um sameiningarmál samhliða kosningum

Á fundi sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps mánudaginn 16. mars síðastliðinn var meðal annars rætt um sameiningarmál. Lagði Sigurbjörg Ottesen oddviti til að gerð yrði skoðanakönnun samhliða sveitarstjórnarkosningunum 16. maí til að kalla fram afstöðu íbúa til sameiningarmála. Var tillagan samþykkt samhljóða. Réttur til þátttöku í skoðanakönnuninni verður sá sami og í sveitarstjórnarkosningum, þ.e. að hver…Lesa meira

true

Næturlokun Hvalfjarðarganga hefst annað kvöld

Vegagerðin hefur gefið frá sér tilkynningu um lokun Hvalfjarðarganga vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Þau verða lokuð á kvöldin frá klukkan 21:30 til klukkan 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, á tímabilinu frá 7. apríl til 29. maí, eða í um sjö vikur. Tekið er fram að framkvæmdin sé liður í því að tryggja öryggi vegfarenda…Lesa meira

true

Auka viðvörunarstig vegna hríðarveðurs og hvassviðris

Á morgun, mánudaginnn 6. apríl annan páskadag, má búast við hríðaveðri víða um land. „Einnig er spáð vindi að stormstyrk, jafnvel roki, með suðurströndinni um tíma með mjög hvössum vindhviðum. Þetta ástand getur varað fram á þriðjudagsmorgun. Vegfarendur eru hvattir til að kynna sér færð og veðurviðvaranir fyrir ferðalög og huga tilfærslu m.v. veður,“ segir…Lesa meira

true

Sólardans á páskum

Páskadagur er fyrsti sunnudagur eftir fullt tungl að loknum vorjafndægrum, segir í Sögu daganna eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing sem fæddist og ólst upp í Dölum. Þekktasta þjóðtrú á páskum varðar sólardansinn, en samkvæmt henni á sólin að dansa af gleði nokkur augnablik á páskadagsmorgun á nákvæmlega sömu stundu og Jesús reis upp frá dauðum. Veðurfræðingar…Lesa meira

true

Gul viðvörun um land allt á annan í páskum

Spáð er leiðindaveðri á annan í páskum og hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun fyrir landið allt þann dag. Búist er við samgöngutruflunum og kemur það sér líklega illa fyrir marga sem væntanlega verða á heimleið að loknu páskafríi. Veðrið gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi.…Lesa meira

true

Viðreisn á Akranesi leggur fram lista

Viðreisn Akranesi tekur nú í fyrsta skipti þátt í sveitastjórnakosningum og hefur samþykkt framboðslista sinn. Oddviti listans er Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur og brúarhönnuður, Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari er í öðru sæti, Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri er í þriðja sæti og Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona er í fjórða sæti. Í tilkynningu segir…Lesa meira

true

Næturlokun Hvalfjarðarganga

Vegagerðin hefur gefið frá sér tilkynningu um lokun Hvalfjarðarganga vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Þau verða lokuð á kvöldin frá kl. 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, á tímabilinu 7. apríl til 29. maí eða í um sjö vikur, opið verður sem sagt fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags.Tekið er fram að framkvæmdin…Lesa meira