
Viðreisn Akranesi leggur fram lista
Viðreisn Akranesi tekur nú í fyrsta skipti þátt í sveitastjórnakosningum og hefur samþykkt framboðslista sinn. Oddviti listans er Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur og brúarhönnuður, Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari er í öðru sæti, Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri er í þriðja sæti og Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona er í fjórða sæti.