
Næturlokun Hvalfjarðarganga hefst annað kvöld
Vegagerðin hefur gefið frá sér tilkynningu um lokun Hvalfjarðarganga vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Þau verða lokuð á kvöldin frá klukkan 21:30 til klukkan 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, á tímabilinu frá 7. apríl til 29. maí, eða í um sjö vikur. Tekið er fram að framkvæmdin sé liður í því að tryggja öryggi vegfarenda til lengri tíma og uppfæra mikilvæga innviði í samræmi við nútímakröfur, en ekki sé hægt að vinna verkið án lokana með fullnægjandi öryggi. Á þessu tímabili verður umferð beint um Hvalfjörð.
Núverandi lýsing í Hvalfjarðargöngum hefur verið í notkun frá opnun þeirra sumarið 1998. Framleiðslu á perum fyrir þann búnað hefur nú verið hætt og birgðir að klárast. Vegagerðin telur að með aukinni umferð um göngin sé brýnt að ráðast í heildaruppfærslu á lýsingunni. Framkvæmdin er umfangsmikil og unnið verður á nóttunni til að lágmarka áhrif á daglega umferð eins og kostur er. Eldri búnaður verður fjarlægður og settir upp nýir, dimmanlegir díóðu (LED)-lampar sem uppfylla kröfur um lýsingu og öryggi auk þess sem lýsingin í göngunum verður bæði betri og orkunýtnari
Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í síðustu viku að fyrirhugaðar lokanir muni ekki einvörðungu hafa áhrif fyrir fólk og fyrirtæki á Akranesi eða norðan Hvalfjarðar, heldur allt norðan- og vestanvert landið og sérstaklega þar sem lokað er snemma að kvöldi. Kallaði hann eftir fylgdarakstri um göngin og nefnir að einnig skipti miklu máli að akstur neyðarbíla og sjúkraflutninga geti gengið greiðlega fyrir sig þrátt fyrir vinnu í göngunum. Fjölmargir Vestlendingar sækja atvinnu um göngin á höfuðborgarsvæðið og kemur þetta sér sérlega illa fyrir þann hóp. Enn fremur nefnir Haraldur að ekki sé ábyrgt að vísa mikilli umferð á veginn fyrir Hvalfjörð.