
Sjö efstu sæti listans. Ljósm. aðsend
Framboðslisti Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit
Íbúahreyfing Hvalfjarðarsveitar hefur birt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Kosið var persónukjöri í sveitarfélaginu fyrir fjórum árum. Þetta er fyrsti listinn sem lagður er fram. Á lista Íbúahreyfingarinnar eru alls 14 nöfn, en efstu þrjú sæti skipa: Þóra Margrét Júlíusdóttir skipulagsfræðingur Svarfhóli í fyrsta sæti, Baldur Þór Ketilsson kerfisfræðingur Leyni í öðru og Vignir Sigurjónsson lögfræðingur Lækjarmel 9 í þriðja sæti.
Málefnaskrá framboðsins hefur einnig verið birt og er þar kveðið á um nokkra megin þætti í stefnu hreyfingarinnar.