
Við Miðhraun. Ljósm. gj
Leggja fram skoðanakönnun um sameiningarmál samhliða kosningum
Á fundi sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps mánudaginn 16. mars síðastliðinn var meðal annars rætt um sameiningarmál. Lagði Sigurbjörg Ottesen oddviti til að gerð yrði skoðanakönnun samhliða sveitarstjórnarkosningunum 16. maí til að kalla fram afstöðu íbúa til sameiningarmála. Var tillagan samþykkt samhljóða.