
Auka viðvörunarstig vegna hríðarveðurs og hvassviðris
Á morgun, mánudaginnn 6. apríl annan páskadag, má búast við hríðaveðri víða um land. „Einnig er spáð vindi að stormstyrk, jafnvel roki, með suðurströndinni um tíma með mjög hvössum vindhviðum. Þetta ástand getur varað fram á þriðjudagsmorgun. Vegfarendur eru hvattir til að kynna sér færð og veðurviðvaranir fyrir ferðalög og huga tilfærslu m.v. veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.
Um tíma á morgun er appelsínugul viðvörun í gildi um allt sunnavert landið, þar á meðal spásvæðið Faxaflóa: „Austan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Snjókoma eða slydda og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð, en víða rigning um kvöldið. Ekkert ferðaveður. Einnig eru líkur á foktjóni og er fólk hvatt til að huga að lausamunum.“ Þetta ástand varir frá klukkan 14-22 á morgun, mánudag við Faxaflóa. Heldur minni vindstyrkur verður við Breiðafjörð, en þar er gul við vörun í gildi frá því síðdegis og fram til miðnættis.