Fréttir

true

Borgarbyggðarlistinn, listi félagshyggjufólks, býður fram

Fjölmennur fundur félagshyggjufólks í Borgarbyggð var haldið að Hótel Vesturlandi í Borgarnesi í gærkvöldi. Á fundinum var samþykkt að leggja fram framboðslista fyrir sveitastjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalashrepps undir nafninu Borgarbyggðarlistinn og notast yrði við listabókstafinn A. Einnig var samþykktur framboðslisti og er hann í heild sinni sem hér segir: Nr. 1 Jovana…Lesa meira

true

Leita eftir aðstoðarskólastjóra

Tónlistarskóli Stykkishólms óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra. Tónlistarskólinn er rekinn samhliða Grunnskólanum í Stykkishólmi og skipar mikilvægan sess í menningar- og skólastarfi sveitarfélagsins. Um fullt starf er að ræða sem felur í sér 50% kennslu og 50% stjórnun. Hlutfallið getur verið sveigjanlegt með tilliti til þarfa skólans, sem og hæfni og reynslu þess sem ráðinn…Lesa meira

true

Mitt atkvæði – Mín rödd

Í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. hefur Grundarfjarðarbær í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – Mín rödd, sem stutt er af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ákveðið að halda vinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna til þess að auka kosningaþáttöku í kosningunum í vor. Markmið vinnustofunnar er að auka þekkingu innflytjenda á sveitarstjórnarkosningum og hlutverki sveitarfélaga.…Lesa meira

true

Listaverkaskrá sett á laggirnar í Snæfellsbæ

Listaverk gegna djúpstæðu og fjölbreyttu hlutverki í samfélögum manna. Þau eru ekki eingöngu til skrauts, heldur móta þau hugsun okkar, líðan og hvernig við tengjumst hvert öðru. Þau vekja upp spurningar, ögra viðhorfum okkar og fær okkur til að hugleiða á dýptina um lífið og tilveruna. Hvort sem það er tónlist, myndlist, leikhús eða handverk…Lesa meira

true

Ljóslaust vindmælimastur á Grjóthálsi hættulegt flugöryggi

Undanfarnar þrjár vikur hefur ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði. Mastrið var sett upp í byrjun ágúst á síðasta ári og er ætlað að mæla vind vegna hugmynda um vindmylluver í landi Hafþórsstaða og Sigmundarstaða. Hrjónur ehf. er félag landeigenda sem skráð er fyrir vindmælingunum. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns…Lesa meira

true

Íslandsglíman í fyrsta skipti í Búðardal

Laugardaginn 11. apríl klukkan 14 hefst 115. Íslandsglíman í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þar mun fremsta glímufólk landsins etja kappi og reyna að ná í eftirsóttasta verðlaunagrip glímunnar. Í kvennaflokki er keppt um Freyjumenið en sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Glímudrottning Íslands. Í karlaflokki er keppt um Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip á Íslandi, og hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið Glímukóngur…Lesa meira

true

H listi kynntur til leiks í Stykkishólmi

H-listinn – listi framfarasinna í Stykkishólmi, kynnti um páskahelgina framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. „Listinn er skipaður 14 öflugum einstaklingum á öllum aldri með fjölbreytta reynslu og brennandi áhuga á að vinna að bættum hag sveitarfélagsins. Björn Ásgeir Sumarliðason leiðir listann,“ segir í tilkynningu. Bæjarstjóraefni H-listans er Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson sem…Lesa meira

true

Komu saman og blessuðu páskamatinn

Það þykir ómissandi hefð í kaþólskum sið, einkum hjá fólki frá Austur-Evrópu, að láta blessa páskamatinn. Fjöldi þeirra kom saman í Akraneskirkju á laugardag fyrir páska í þeim tilgangi. Tæplega hundrað gestir komu með tilbúinn mat að heiman, í fallega skreyttum körfum. Þeim var raðað framan við altarið þar sem Damian Wizkiewich kaþólskur prestur blessaði…Lesa meira

true

Skagamönnum spáð góðu gengi í sumar

Fréttavefurinn Vísir.is birtir í dag niðurstöðu úr spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild karla í fótbolta sem opinberuð var við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Fæstum að óvörum er Víkingi spáð titilvörn og Breiðabliki öðru sæti. Stjarnan og KR fylgja þar á eftir og er því spáð Evrópusætum fyrir næsta ár. Skagamönnum…Lesa meira