
Prestur blessar páskamatinn. Ljósm. hgj
Komu saman og blessuðu páskamatinn
Það þykir ómissandi hefð í kaþólskum sið, einkum hjá fólki frá Austur-Evrópu, að láta blessa páskamatinn. Fjöldi þeirra kom saman í Akraneskirkju á laugardag fyrir páska í þeim tilgangi. Tæplega hundrað gestir komu með tilbúinn mat að heiman, í fallega skreyttum körfum. Þeim var raðað framan við altarið þar sem Damian Wizkiewich kaþólskur prestur blessaði hann.