Fréttir

true

Mitt atkvæði – Mín rödd

Í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. hefur Grundarfjarðarbær í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – Mín rödd, sem stutt er af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ákveðið að halda vinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna til þess að auka kosningaþáttöku í kosningunum í vor. Markmið vinnustofunnar er að auka þekkingu innflytjenda á sveitarstjórnarkosningum og hlutverki sveitarfélaga.…Lesa meira

true

Listaverkaskrá sett á laggirnar í Snæfellsbæ

Listaverk gegna djúpstæðu og fjölbreyttu hlutverki í samfélögum manna. Þau eru ekki eingöngu til skrauts, heldur móta þau hugsun okkar, líðan og hvernig við tengjumst hvert öðru. Þau vekja upp spurningar, ögra viðhorfum okkar og fær okkur til að hugleiða á dýptina um lífið og tilveruna. Hvort sem það er tónlist, myndlist, leikhús eða handverk…Lesa meira

true

Ljóslaust vindmælimastur á Grjóthálsi hættulegt flugöryggi

Undanfarnar þrjár vikur hefur ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði. Mastrið var sett upp í byrjun ágúst á síðasta ári og er ætlað að mæla vind vegna hugmynda um vindmylluver í landi Hafþórsstaða og Sigmundarstaða. Hrjónur ehf. er félag landeigenda sem skráð er fyrir vindmælingunum. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns…Lesa meira

true

Íslandsglíman í fyrsta skipti í Búðardal

Laugardaginn 11. apríl klukkan 14 hefst 115. Íslandsglíman í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þar mun fremsta glímufólk landsins etja kappi og reyna að ná í eftirsóttasta verðlaunagrip glímunnar. Í kvennaflokki er keppt um Freyjumenið en sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Glímudrottning Íslands. Í karlaflokki er keppt um Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip á Íslandi, og hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið Glímukóngur…Lesa meira

true

H listi kynntur til leiks í Stykkishólmi

H-listinn – listi framfarasinna í Stykkishólmi, kynnti um páskahelgina framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. „Listinn er skipaður 14 öflugum einstaklingum á öllum aldri með fjölbreytta reynslu og brennandi áhuga á að vinna að bættum hag sveitarfélagsins. Björn Ásgeir Sumarliðason leiðir listann,“ segir í tilkynningu. Bæjarstjóraefni H-listans er Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson sem…Lesa meira

true

Komu saman og blessuðu páskamatinn

Það þykir ómissandi hefð í kaþólskum sið, einkum hjá fólki frá Austur-Evrópu, að láta blessa páskamatinn. Fjöldi þeirra kom saman í Akraneskirkju á laugardag fyrir páska í þeim tilgangi. Tæplega hundrað gestir komu með tilbúinn mat að heiman, í fallega skreyttum körfum. Þeim var raðað framan við altarið þar sem Damian Wizkiewich kaþólskur prestur blessaði…Lesa meira

true

Skagamönnum spáð góðu gengi í sumar

Fréttavefurinn Vísir.is birtir í dag niðurstöðu úr spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild karla í fótbolta sem opinberuð var við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Fæstum að óvörum er Víkingi spáð titilvörn og Breiðabliki öðru sæti. Stjarnan og KR fylgja þar á eftir og er því spáð Evrópusætum fyrir næsta ár. Skagamönnum…Lesa meira

true

Stór hópur búfræðinema í námsferð erlendis

Þátttaka búfræðinema Landbúnaðarháskóla Íslands í Erasmus+ hefur tekið stökk síðustu ár og náð nýju hámarki á þessu námsári. Nemendur í búfræðinámi sækja sér alþjóðlega reynslu í mun stærri hópum en áður og fjölgunin í verkefnum er orðin svo afgerandi að hún markar nýtt tímabil í alþjóðavæðingu búfræðináms á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness gefur til sjúkrahússins

Í gærkveldi komu félagar í Lionsklúbbi Akraness saman í matsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Auk hefðbundinna fundarstarfa var nælt gullmerki í barm Viktors Björnssonar klúbbfélaga. Lionsklúbburinn afhenti Heilbrigðisstofnun Vesturlands veglegar gjafir við þetta tækifæri. Að þessu sinni var gefið Schiller hjartalínuritstæki, Siemens blóðrannsóknatæki, Mach 130 F færanleg vinnuljós og búnaður til aðgerða á blöðruhálskirtli. Heildarvermæti…Lesa meira