
Sjálfstæðisflokkurinn í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, samþykkti í gær framboðslista fyrir kosningarnar 16. maí á fundi fulltrúaráða flokksins í Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu. Fundurinn var haldinn í björgunarmiðstöðinni á Fitjum í Borgarnesi. Flokkurinn hefur á þessu kjörtímabili átt tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Efstu þrjú sæti listans eru skipuð sama fólki og setið hefur í sveitarstjórn…Lesa meira








