Fréttir

true

Góð stemning á Bárumóti í sundi

Þriðjudaginn 10. mars fór fram árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness, Bárumótið, í Bjarnalaug. Alls tók 41 barn á aldrinum 12 ára og yngri þátt í mótinu. Að sögn Kjells Wormdal yfirþjálfara stóðu börnin sig öll frábærlega og greinilegt að miklar framfarir hafa orðið hjá þessu efnilega sundfólki. Áhorfendur fjölmenntu í Bjarnalaug og óhætt er að segja…Lesa meira

true

Áfram er spáð vetrarríki um norðvestanvert landið – færð gæti spillst

Á undanförnum dögum hefur færð ítrekað spillst, svo sem á fjallvegum norðanlands, Vestfjörðum og víðar. Snjóflóð hafa fallið m.a. við Siglufjörð og á Vestfjörðum. Nú gengur ný lægð yfir og varað er við henni: „Gengur í hvassa norðaustan átt með snjókomu á Vestfjörðum og utanverðum Tröllaskaga í kvöld, og víðar norðvestantil á landinu í nótt.…Lesa meira

true

Urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna

Íslandsmótið í sveitakeppni kvenna í bridds var spilað um helgina með þátttöku átta sveita. Hart var barist í efri hlutanum, en úrslit urðu þau að sigurvegari varð sveit Kóluss með 100,68 stig. Sveitina skipuðu þær Anna Heiða Baldursdóttir og Inda Hrönn Björnsdóttir, Dagbjört Hannesdóttir og Svanhildur Hall. Í öðru sæti varð sveit PWC, þær Ljósbrá…Lesa meira

true

Fjölnir vann Snæfell með miklum mun

Fjölnir tók á móti Snæfelli í leik í 1. deild kvenna í körfunni í gær. Gestirnir úr Stykkishólmi leiddu að loknum fyrsta leikhluta með 25 stigum gegn 19. Eftir það var eins og allur vindur væri úr þeim og hafði Fjölnir talsverða yfirburði eftir það. Leikurinn endaði mað 97 stigum Fjölniskvenna gegn 67 stigum Snæfells.…Lesa meira

true

Ársreikningur sýnir sterka fjárhagsstöðu

Á fundi í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar síðastliðinn miðvikudag var ársreikningur sveitarsjóðs 2025 lagður fram til fyrri umræðu og samþykktur til síðari umræðu og afgreiðslu. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 467,1 milljón króna. Eigið fé í árslok nam 5.243,7 mkr. samkvæmt efnahagsreikningi. Veltufé frá rekstri var 31,90%, veltufjárhlutfall 9,03% og eiginfjárhlutfall…Lesa meira

true

Strandamenn kjósa um sameiningu tveggja hreppa

Á hádegi síðastliðinn laugardag hófst íbúakosning um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps á Ströndum. Kosningarnar munu standa yfir til 28. mars næstkomandi og þeir íbúar sveitarfélaganna sem náð hafa 16 ára aldri fyrir lok kosningatímabilsins mega greiða atkvæði. Kjósendur geta greitt atkvæði á kjörstöðum sem auglýstir eru á heimsíðum sveitarfélaganna eða með pósti. Í…Lesa meira

true

Stólarnir völtuðu yfir Skagamenn

Karlalið ÍA í Bónusdeildinni í körfubolta tók á móti Tindastóli í gærkvöldi. Miðað við stöðu liðanna í deildinni mátti fyrirfram búast við að leikurinn yrði bakki fyrir þá gulklæddu á Jaðarsbökkum. Það reyndist og raunin. Jafnræði var þó með liðunum í fyrsta leikhluta, hvort lið gerði 23 stig. Eftir það voru það Skagfirðingarnir sem hreinlega…Lesa meira

true

Vetrarríki norðanlands – snjóflóðahætta og ófærð

Við Breiðafjörð er í dag gul viðvörun Veðurstofunnar. Það verður norðaustan 15-23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum, úrkomumest norðantil. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Vestfjörðum og Norðurlandi (sjá nánar vef Veðurstofunnar). Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir: „Norðaustan stórhríð á Vestfjörðum í dag með tilheyrandi ófærð. Erfið…Lesa meira

true

Bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti

Borgfirðingurinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir bætti í dag eigið Íslandsmet í sleggjukasti á Evrópubikarmóti á Kýpur þegar hún kastaði 71,41 metra. Ruv.is greindi frá. Þetta er bæting hjá henni á Íslandsmeti frá síðasta sumri um þrjá sentimetra. Varð hún önnur í keppninni á eftir Katrine Jacobsen frá Danmörku sem kastaði 75,52 metra, sem er lengsta kast…Lesa meira

true

Brjálað veður á heiðinni og Heiðar til aðstoðar

Undanfarna tvo daga hefur gert slæmt veður og færð á Holtavörðuheiði. Ökumenn hafa þrátt fyrir vafasamar aðstæður lagt á heiðina. Björgunarsveitin Heiðar, sem kennd er við Hrein Heiðar Árnason sem varð úti á heiðinni við smalamennskur í september 1972, er jafnan send á vettvang ef koma þarf vegfarendum á heiðinni til aðstoðar. Á fimmtudag og…Lesa meira