Vel búinn björgunarsveitarbíll frá Húnum er notaður við að losa fasta bíla. Ljósm. Landsbjörg

Áfram er spáð vetrarríki um norðvestanvert landið – færð gæti spillst

Á undanförnum dögum hefur færð ítrekað spillst, svo sem á fjallvegum norðanlands, Vestfjörðum og víðar. Snjóflóð hafa fallið m.a. við Siglufjörð og á Vestfjörðum. Nú gengur ný lægð yfir og varað er við henni: „Gengur í hvassa norðaustan átt með snjókomu á Vestfjörðum og utanverðum Tröllaskaga í kvöld, og víðar norðvestantil á landinu í nótt. Blint og erfið akstursskilyrði í hríð á fjallvegum, t.d. Steingrímsfjarðarheiði, Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Dregur úr ofankomu í fyrramálið, og úr vindi eftir hádegi. Vindhviður um 35 m/s undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi á milli kl 06 og 12, og einnig á Snæfellsnesi og lægir þar annað kvöld.“

Frá því klukkan 04 í nótt og til klukkan 14 á morgun er gul viðvörun í gildi fyrir spásvæðið Faxaflóa: „Norðaustan 18-25 m/s á sunnanverðu Snæfellsnesi með hviðum upp í 35 m/s, sem geta verið hættulegar ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.“