Rúna Björk og Gunnar Logi voru Bárumeistarar 2026. Ljósmyndir: SA

Góð stemning á Bárumóti í sundi

Þriðjudaginn 10. mars fór fram árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness, Bárumótið, í Bjarnalaug. Alls tók 41 barn á aldrinum 12 ára og yngri þátt í mótinu. Að sögn Kjells Wormdal yfirþjálfara stóðu börnin sig öll frábærlega og greinilegt að miklar framfarir hafa orðið hjá þessu efnilega sundfólki. Áhorfendur fjölmenntu í Bjarnalaug og óhætt er að segja að vart hafi fleiri komist fyrir.