Fréttir

true

Þjóðaratkvæðagreiðsla verður 29. ágúst um að hefja aðildarviðræður

Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynna nú tillögu þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt verður hvort Ísland eigi að taka á ný upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Samningsstaða Íslands er góð núna,“ sagði Kristrún Frostadóttir í ávarpi sínu nú rétt í þessu. Þingsályktunartillagan verður lögð fram á næstu dögum en kjördagur verður laugardaginn 29. ágúst næstkomandi. „Á að halda…Lesa meira

true

Íbúar eru nú 18.599

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 16 á tímabilinu 1. desember 2025 til 1. mars 2026. Alls eru nú 18.599 búsettir í landshlutanum. Á fyrrgreindu tímabili fjölgaði íbúum á Akranesi, í Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Dalabyggð. Mest fækkaði í Hvalfjarðarsveit, eða um 16 manns á tímabilinu. Einnig varð minniháttar fækkun í Eyja- og Miklaholtshreppi, Skorradalshreppi, Borgarbyggð og…Lesa meira

true

Nágrannar áhyggjufullir vegna ástands hússins

Í ágúst í fyrrasumar kom upp mikill eldur í mannlausu húsi við Akurgerði 13 á Akranesi. Þrátt fyrir bágt ástand hússins kom í ljós við rannsókn að einhverjir einstaklingar höfðu haldið þar til vikurnar fyrir brunann. Þá vaknaði grunur um að kveikt hafi verið í húsinu og var það staðfest við rannsókn lögreglu. Ástand hússins…Lesa meira

true

Krapi og hálka á vegum

Samkvæmt umferdin.is, upplýsingavef Vegagerðarinnar, er nú krapi á Hringvegi og víðar í Borgarfirði og í norðanverðum Hvalfirði. Þæfingsfærð er á Heydal og flughált er á Laxárdal. Hálka eða snjóþekja eru víðast hvar á öðrum leiðum um vestanvert landið.Lesa meira

true

Bætt leigubílalög hafa tekið gildi

Alþingi samþykkti í gærmorgun frumvarp innviðaráðherra um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur. Meginbreytingin er sú að stöðvaskylda hefur verið endurvakin og leigubifreiðastjórar eiga að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gildu starfsleyfi. Leigubifreiðastöðvum verður einnig gert skylt að skrá rafrænt allar ferðir leigubifreiðastjóra (rekstrarleyfishafa), þ.m.t. upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar og akstursleið og greiðslur farþega. Loks…Lesa meira

true

Jöfnunarsjóður hafnar greiðslum alls kostnaðar við sameiningu

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur hafnað beiðni Samstarfsnefndar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, frá 5. desember 2025, þar sem óskað var eftir auknu framlagi vegna kostnaðar sem hlotist hefur af undirbúningi tillögu um sameiningu sveitarfélaganna. Í erindinu kom fram að heildarkostnaður vegna starfa nefndarinnar, kynningar á sameiningartillögunni ásamt undirbúningi og framkvæmd atkvæðagreiðslu hafi numið alls 40,1 milljón…Lesa meira

true

Sungið verður með Sinfó við vígslu nýs íþróttahúss

Tvennir tónleikar á dagskrá á vígsludegi nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum Í vor verður stór tónlistarviðburður á Akranesi þegar Sinfóníuhljómsveit Íslands mætir þangað og heldur tvenna tónleika, ásamt kórum og einsöngvurum af Vesturlandi öllu. Það er Hilmar Örn Agnarsson organisti við Akraneskirkju sem vakti máls á verkefninu við Sinfóníuhljómsveitina fyrir um það bil tveimur árum og…Lesa meira

true

Vetrarfærð á vegum á Vestfjörðum og norðanlands

Vegagerðin bendir á að á fjallvegum sunnantil á Vestfjörðum verður ofankoma og blint framan af degi í dag. Síðar einnig á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Á Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði versnar færð síðdegis með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni. Á láglendi verður hins vegar væg þýða í dag.Lesa meira

true

Minna magn flutt út en verðið hærra

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,6 milljörðum króna í janúar á þessu ári. Það er um 5% samdráttur í krónum talið frá sama mánuði í fyrra. Samdrátturinn er minni í erlendri mynt, eða 3%, þar sem gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 2% sterkara nú í janúar en fyrir ári. Samdráttinn má fyrst og fremst rekja til…Lesa meira

true

Bjarki mun í vor rifa seglin í Dölum

Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurráðningu í starf sveitarstjóra að loknum sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Bjarki segir í samtali við Skessuhorn að ráðningarsamningur hans gildi út maí og muni hann að óbreyttu láta af störfum þá. „Ég hef tilkynnt sveitarstjórn Dalabyggðar um þessa ákvörðun og þótti mér rétt að…Lesa meira