
Sungið verður með Sinfó við vígslu nýs íþróttahúss
Tvennir tónleikar á dagskrá á vígsludegi nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum
Í vor verður stór tónlistarviðburður á Akranesi þegar Sinfóníuhljómsveit Íslands mætir þangað og heldur tvenna tónleika, ásamt kórum og einsöngvurum af Vesturlandi öllu. Það er Hilmar Örn Agnarsson organisti við Akraneskirkju sem vakti máls á verkefninu við Sinfóníuhljómsveitina fyrir um það bil tveimur árum og nú er Hólmfríður Friðjónsdóttir kórstjóri með meiru komin til liðs við hann sem og Vera Líndal verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað. Tilefnið er ekki síst það að í vor verður vígt nýtt fjölnota íþróttahús, AvAir höllin, á Jaðarsbökkum á Akranesi og þar verða tvennir tónleikar haldnir föstudaginn 15. maí, daginn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Verkefnið er unnið í samstarfi Akraneskaupstaðar, Sinfóníuhljómsveitarinnar og kóranna. Klukkan 13 þennan dag mun Sinfóníuhljómsveitin halda tónleika fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri þar sem flutt verður Vísnabókin. Um kynningu á þeim segir: „Hver kannast ekki við lög á borð við Siggi var úti, Ég á lítinn skrýtinn skugga, Fyrr var oft í koti kátt, Hann Tumi fer á fætur og Komdu kisa mín.“ Nánar verður sagt frá þeim tónleikum síðar.
Hæfileikasúpa af Vesturlandi
Segja má að á kvöldtónleikunum verði hægt að upplifa blómann úr hæfileikaflóru tónlistarfólks á Vesturlandi. Þar koma meðal annars fram, ásamt Sinfóníuhljómsveitinni, kórar úr landshlutanum; Freyjukórinn, Stemma, Gleðigjafar og félagar úr Karlakórnum Söngbræðrum úr Borgarfirði og Karlakórinn Heiðbjört á Snæfellsnesi. Einnig verða þarna Hljómur, Karlakórinn Svanir og Kvennakórinn Ymur frá Akranesi. Vakin er athygli á að upptalningin er ekki endilega tæmandi.
Tækifæri og upplifun
Þau Hólmfríður og Hilmar Örn segjast aðspurð ekki vita á þessu stigi hvernig hljómburðurinn í nýbyggingunni á Jaðarsbökkum verði, enda er húsið splunkunnýtt. En þau eru bjartsýn og hlakka mjög til að stefna svo mörgum söngvurum saman þennan dag, enda sé það mikið tækifæri fyrir kórfólk af Vesturlandi að fá að syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum. Einsöngvarar verða þau Benedikt Kristjánsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Kristín Sveinsdóttir sem öll hafa sterkar tengingar við Vesturland. Húsið er gríðarlega myndarlegt og reiknað er með að í húsinu verði hátt í þúsund manns með gestum, kórum og hljómsveit.
Falleg alþýðleg efnisskrá
Á dagskrá kvöldtónleikanna 15. maí verður blandað efni, þekktar óperuaríur jafnt sem vinsæl og klassísk íslensk sönglög. „Þetta verður alþýðleg og falleg efnisskrá,“ segir Hólmfríður. „Æfingar fara fram innan kórstarfsins á hverjum stað, en svo verða fjórar æfingar þar sem allir koma saman og þær verða haldnar á mismunandi stöðum í fjórðungnum.“ Sjálf munu þau Hilmar Örn og Hólmfríður sem kórastjórnendur undirbúa viðburðinn, en einnig taka þátt með því að syngja með kórunum. En stjórnandi á tónleikunum verður Hjörtur Páll Eggertsson, ungur tónlistarmaður sem numið hefur hljómlistarstjórnun í Amsterdam í Hollandi. Það er ljóst að Skagamenn og aðrir Vestlendingar geta hlakkað til tónlistarveislunnar sem framundan er föstudaginn 15. maí.

