Nágrannar áhyggjufullir vegna ástands hússins

Í ágúst í fyrrasumar kom upp mikill eldur í mannlausu húsi við Akurgerði 13 á Akranesi. Þrátt fyrir bágt ástand hússins kom í ljós við rannsókn að einhverjir einstaklingar höfðu haldið þar til vikurnar fyrir brunann. Þá vaknaði grunur um að kveikt hafi verið í húsinu og var það staðfest við rannsókn lögreglu. Ástand hússins var afar bágborið fyrir brunann og til marks um það voru strappar notaðir til að halda útveggjum þess saman. Eftir eldsvoðann versnaði ástandið þó til muna og telst það hættulegt. Engu að síður virðist sem byrjaðar séu lagfæringar á húsinu að innanverðu. Hluta innbús verið komið fyrir á lóð við húsið ásamt vél úr jeppa og fleira drasli. Nágrannar hafa í samtali við Skessuhorn lýst verulegum áhyggjum af ástandi hússins sem þeir segja versna með hverjum degi sem líður. „En það er komin voða fín ný útidyrahurð! Mér finnst þetta alveg stórmerkilegar vinnuaðferðir. Ætli þeir leigi þetta svo ekki út aftur, rándýr myglukofi,“ segir nágranni einn í samtali við Skessuhorn. Viðkomandi bætti því við að nágrannar hafa sömuleiðis áhyggjur í vondum veðrum, hvort brak fari að fjúka yfir bíla eða annað og velta því fyrir ér hver sé þá borgunarmaður?