Þjóðaratkvæðagreiðsla verður 29. ágúst um að hefja aðildarviðræður

Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynna nú tillögu þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt verður hvort Ísland eigi að taka á ný upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Samningsstaða Íslands er góð núna,“ sagði Kristrún Frostadóttir í ávarpi sínu nú rétt í þessu. Þingsályktunartillagan verður lögð fram á næstu dögum en kjördagur verður laugardaginn 29. ágúst næstkomandi. „Á að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið,“ verður spurningin sem þjóðin tekur afstöðu til.

Samkvæmt lögum getur þjóðaratkvæðagreiðslan í fyrsta lagið farið fram þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu þess efnis.

Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, könnun sem gerð var dagana 19. febrúar til 4. mars, kemur fram að 57% þeirra sem tóku þátt eru hlynnt aðildarviðræðum, ríflega þrjátíu prósent andvíg og tólf prósent hvorki né. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru frekar hlynntir því að hefja viðræður eða halda þeim áfram frekar en íbúar á landsbyggðinni.