Fréttir

true

Leggja niður Heyrnar- og talmeinastöðina

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður 1. maí næstkomandi og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við verkefnum hennar og þjónustuþegum. Frumvarp heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar eru að jafnaði 25 og er þetta ein minnsta stofnun…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi kynnir framboðslista sinn

Á fundi í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi í kvöld var borinn upp listi kjörnefndar og samþykktur einróma. Þetta er um leið fyrsti framboðslistinn sem kynntur er á Akranesi og reyndar á Vesturlandi öllu. Líf Lárusdóttir verkefnastjóri og formaður bæjarráðs skipar áfram oddvitasæti listans. Í öðru sæti er Bjarnheiður Hallsdóttir framkvæmdastjóri sem kemur ný inn í…Lesa meira

true

Kanna vilja til sameiningar á afrétt

Á fundi í Fjallskilanefnd Borgarbyggðar síðastliðinn þriðjudag var samþykkt að láta fara fram skoðanakönnun á vilja þeirra bænda, sem upprekstarrétt eiga, til sameiningar á afréttum Þverárréttar og Rauðsgilsréttar í Borgarfirði. Umhverfisfulltrúa var falið að kanna hug fjáreigenda til þessa. Í umfjöllun Skessuhorns um fund sem haldinn var af fjallskilanefnd Þverárréttar 11. febrúar sl., kom fram…Lesa meira

true

Margir að kitla pinnann

Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að 63 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni sem leið. 472 ökumenn voru auk þess myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjögur umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu í vikunni. Tilkynnt var um eignaspjöll á bifreið þar sem hún stóð við…Lesa meira

true

Varað við veðri og slæmum skilyrðum til aksturs

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs um vestanvert landið í dag. Á spásvæðinu við Faxaflóa verður norðvestan 10-18 m/s og snjókoma eða skafrenningur og mjög lítið skyggni á köflum, einkum norðantil. Varasöm akstursskilyrði verða frá kl. 14 til 18. Á spásvæðinu Breiðafirði er í gildi gul viðvörun til klukkan 20 í kvöld en…Lesa meira

true

Atvinnuleysi snarhækkar – hefur ekki mælst meira síðan í Covid faraldrinum

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 8,3% í janúar 2026, en árstíðaleiðrétt er hlutfallið 7,3%. Atvinnuleysi hefur ekki mælst svo hátt frá tímum Covid-19 í apríl 2021. Atvinnuleysi er nú 7,1% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Atvinnuleysi ungs fólks, á aldrinum 16 til 24 ára,…Lesa meira

true

Verðbólga mælist enn yfir fimm prósentum

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5%. Í tilkynningu Hagstofunnar kemur fram að vetrarútsölur séu víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,1% (áhrif á vísitöluna 0,17%) og verð á húsbúnaði, heimilistækjum og fleiru hækkaði um 5,4% (0,21%). Verð á mat…Lesa meira

true

Leyfa starfsemi í gamla Samkomuhúsinu – en byrjað verður á lagfæringum

Gamla Samkomuhúsið við Aðalgötu 6 í Stykkishólmi er komið til ára sinna, var upphaflega byggt árið 1901 og er 206 fermetrar að flatarmáli. Húsið var byggt fyrir Stúkuna, þjónaði sem samkomuhús, var félagsmiðstöð og Eldfjallasafn en hefur staðið autt síðustu árin. Ljóst er að margir íbúar bera hlýjar taugar til hússins, jafnvel stigið þar sín…Lesa meira

true

Íbúahreyfingin boðar undirbúningsfund fyrir nýtt framboð í Hvalfjarðarsveit

„Ég væri ánægður ef að minnsta kosti þrír listar kepptu um hylli kjósenda í vor í Hvalfjarðarsveit,“ segir Áskell Þórisson á Ægissíðu, einn þriggja sem standa fyrir opnum fundi um sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit næstkomandi laugardag. Fundurinn verður klukkan 13 á Hernámssetrinu að Hlöðum. „Við útbjuggum kynningarbækling með umræðupunktum sem ættu að geta hitað upp umræður…Lesa meira

true

Opinn fundur um símenntun í iðnaði og örnámskeið um gervigreind

Iðan fræðslusetur býður til opins samtals um fræðslu og símenntun í iðnaði á Vesturlandi miðvikudaginn 4. mars kl. 14:30 á Hótel Borgarnesi. „Við hvetjum öll sem starfa í iðngreinum, sem og stjórnendur fyrirtækja í iðnaði, til að taka þátt. Markmið fundarins er að skapa vettvang til að ræða tækifæri og áskoranir í síbreytilegu starfsumhverfi. Sérstök…Lesa meira