Atvinnuleysi snarhækkar – hefur ekki mælst meira síðan í Covid faraldrinum

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 8,3% í janúar 2026, en árstíðaleiðrétt er hlutfallið 7,3%. Atvinnuleysi hefur ekki mælst svo hátt frá tímum Covid-19 í apríl 2021. Atvinnuleysi er nú 7,1% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Atvinnuleysi ungs fólks, á aldrinum 16 til 24 ára, var miklu hærra en árstíðaleiðrétt reiknast það 16,6%.