
Íbúahreyfingin boðar undirbúningsfund fyrir nýtt framboð í Hvalfjarðarsveit
„Ég væri ánægður ef að minnsta kosti þrír listar kepptu um hylli kjósenda í vor í Hvalfjarðarsveit,“ segir Áskell Þórisson á Ægissíðu, einn þriggja sem standa fyrir opnum fundi um sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit næstkomandi laugardag. Fundurinn verður klukkan 13 á Hernámssetrinu að Hlöðum. „Við útbjuggum kynningarbækling með umræðupunktum sem ættu að geta hitað upp umræður - og dreifðum honum í Hvalfjarðarsveit fyrr í þessari viku. Aðalatriðið er að á fundinum mæti fólk og lýsi sig tilbúið til að vinna að gerð framboðslista – og vinna síðan með þeim sem taka sæti í sveitarstjórn. Baklandið skiptir gríðarlega miklu máli. Þar er fólkið sem síðar fer í nefndir og slíkt,“ segir Áskell. Ásamt honum eru það Jóhanna G. Harðardóttir og Marteinn Njálsson sem vilja með boðun fundarins koma pólitískri umræðu í gang í sveitarfélaginu og hvetja til þess að val á frambjóðendum verði sem lýðræðislegast. „Tíminn líður hratt og þeir sem ætla að setja saman framboðslista verða að láta hendur standa fram úr ermum,“ segir Áskell.
Við síðustu sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit var viðhaft persónukjör. Lögin eru með þeim hætti að ef einn eða fleiri listar bjóða fram ber að kjósa eftir listakosningu. Berist einungis einn framboðslisti fyrir lokadag, 10. apríl, verður sá listi sjálfkjörinn. Aðspurður segist Áskell vona að minnsta kosti tveir eða fleiri framboðslistar berist í tæka tíð þannig að lýðræðið fái að njóta sín.