
Varað við veðri og slæmum skilyrðum til aksturs
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs um vestanvert landið í dag. Á spásvæðinu við Faxaflóa verður norðvestan 10-18 m/s og snjókoma eða skafrenningur og mjög lítið skyggni á köflum, einkum norðantil. Varasöm akstursskilyrði verða frá kl. 14 til 18. Á spásvæðinu Breiðafirði er í gildi gul viðvörun til klukkan 20 í kvöld en þar verður norðvestan 10-18 m/s og snjókoma eða skafrenningur og mjög lítið skyggni á köflum, fyrst vestantil. Sömuleiðis varasöm akstursskilyrði.