Fræðslufundurinn verður haldinn í Borgarnesi 4. mars nk

Opinn fundur um símenntun í iðnaði og örnámskeið um gervigreind

Iðan fræðslusetur býður til opins samtals um fræðslu og símenntun í iðnaði á Vesturlandi miðvikudaginn 4. mars kl. 14:30 á Hótel Borgarnesi. „Við hvetjum öll sem starfa í iðngreinum, sem og stjórnendur fyrirtækja í iðnaði, til að taka þátt. Markmið fundarins er að skapa vettvang til að ræða tækifæri og áskoranir í síbreytilegu starfsumhverfi. Sérstök áhersla verður lögð á stöðu og þarfir iðnaðarins á Vesturlandi, hvernig efla megi hæfni og styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu með markvissri sí- og endurmenntun,“ segir í tilkynningu.

Dagskrá fundarins:

14:30 – Hús opnar

Boðið verður upp á kaffiveitingar.

15:00 – Iðan fræðslusetur: Hlutverk og starfsemi

Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs, kynnir starfsemi setursins og þau tækifæri sem standa til boða.

15:10 – Reynslusaga úr síbreytilegum iðnaði

Félagsmaður af svæðinu segir frá því hvernig símenntun hefur aukið færni og skilað sér í daglegum störfum.

15:20 – Umræður

Þátttakendur ræða þarfir, tækifæri og áskoranir í iðnaði á svæðinu og tillögur að mögulegum lausnum

16:30 – Samantekt og niðurstöður

Helstu niðurstöður úr umræðu kynntar og ræddar

17:00 – Gervigreind í iðnaði – örnámskeið

Hjörtur Sigurðsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Mynstra, fer yfir hvernig gervigreind getur nýst í iðnaði og gefur hagnýt dæmi um notkun hennar í daglegum störfum.