
Mynd úr safni Skessuhorns frá því þegar Elfjallasafn Haraldar Sigurðssonar var opnað í húsinu.
Leyfa starfsemi í gamla Samkomuhúsinu – en byrjað verður á lagfæringum
Gamla Samkomuhúsið við Aðalgötu 6 í Stykkishólmi er komið til ára sinna, var upphaflega byggt árið 1901 og er 206 fermetrar að flatarmáli. Húsið var byggt fyrir Stúkuna, þjónaði sem samkomuhús, var félagsmiðstöð og Eldfjallasafn en hefur staðið autt síðustu árin. Ljóst er að margir íbúar bera hlýjar taugar til hússins, jafnvel stigið þar sín fyrstu dansspor við væntanlegan maka sinn. Gerðar voru a.m.k. tvær skýrslur um ástand hússins árið 2021. Sýndu þær afar bágborið ástand og staðfestu auk þess myglu. Í annarri skýrslunni kom fram að skynsamlegast væri fyrir sveitarsjóð að rífa húsið og byggja frekar annað í upprunalegu útliti, vilji menn hafa það áfram sem hluta bæjarmyndarinnar.