Frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjórnarkosninga á Akranesi 16. maí. Á myndina vantar þrjá af átján. Ljósm. mm

Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi kynnir framboðslista sinn

Á fundi í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi í kvöld var borinn upp listi kjörnefndar og samþykktur einróma. Þetta er um leið fyrsti framboðslistinn sem kynntur er á Akranesi og reyndar á Vesturlandi öllu. Líf Lárusdóttir verkefnastjóri og formaður bæjarráðs skipar áfram oddvitasæti listans. Í öðru sæti er Bjarnheiður Hallsdóttir framkvæmdastjóri sem kemur ný inn í pólitíkina. Þriðja sæti listans, líkt og fyrir síðustu kosningar, skipar Guðmundur Ingþór Guðjónsson lögreglumaður og bæjarfulltrúi en Viktor Elvar Viktorsson húsasmiður kemur nýr inn í fjórða sætið. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa í kosningunum 2022.

Listinn í heild er þannig:

Nr. 1: Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi

Nr. 2: Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri

Nr. 3: Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi

Nr. 4: Viktor Elvar Viktorsson, húsasmiður

Nr. 5: Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur

Nr. 6: Emil Kristmann Svævarsson, framkvæmdastjóri

Nr. 7: Ísak Örn Elvarsson, viðskiptastjóri

Nr. 8: Erla Karlsdóttir, aðalbókari

Nr. 9: Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna

Nr. 10: Þura Björk Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar

Nr. 11: Stefán Orri Ólafsson, lögfræðingur

Nr. 12: Anna Þóra Hannesdóttir, kennaranemi

Nr. 13: Ásta María Búadóttir, viðskiptafræðinemi

Nr. 14: Sigurjón Jósef Magnússon, tónlistarmaður

Nr. 15: Tjörvi Guðjónsson, fjármálastjóri

Nr. 16: Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur

Nr. 17: Guðný Jóna Ólafsdóttir, verkefnastjóri

Nr. 18: Ólafur Guðmundur Adolfsson, alþingismaður.