Fréttir

true

Víkingur sigraði Vesturlandsslaginn

Vesturlandsslagur Pepsi deildar karla í knattspyrnu fór fram í gærkvöldi þegar Víkingur Ó. og ÍA mættust í Ólafsvík. Leikurinn var jafnframt botnslagur umferðarinnar, fyrir leik var Víkingur í 10. sæti með tíu stig og ÍA stigi á eftir með í 11. og næstneðsta sætinu. Leikurinn fór rólega af stað og liðin vörðu fyrstu mínútunum í…Lesa meira

true

Blæstri og rigningu spáð í dag

Gera má ráð fyrir rigningu og hvassviðri í dag. Spáð er að gangi í suðaustan 10-23 m/s upp úr hádegi með rigningu sunnan- og vestanlands en hvassast verður við suðvesturströndina. Talsverð rigning verður suðvestanlands en mikil rigning á Suðausturlandi og undir Eyjafjöllum þegar líður á daginn. Þurrt verður um landið norðaustanvert. Snýst í mun hægari…Lesa meira

true

Veiðiþjófar gómaðir á bökkum Laxár í Leirársveit

Síðatliðinn sunnudag stöðvuðu veiðiverðir við Laxá í Leirársveit tvo menn að ólöglegum veiðum í ánni. Höfðu þeir gengið upp með ánni frá þjóðveginum við ósa árinnar upp í Laxfoss þar sem til þeirra sást. Tóku þeir til fótanna er þeir urðu veiðivarðanna varir en voru hlaupnir uppi. Lögregla var kölluð til og tók af þeim…Lesa meira

true

Þorsteinn Jónsson sækir um styrk til bókaútgáfu

Þorsteinn Jónsson ættfræðingur hefur óskað eftir styrk frá Akraneskaupstað til að undirbúa útgáfu ritverksins „Skagamenn – Fólkið sem byggði bæinn.“ Í fjögurra binda bókverki yrði rakin forsaga byggðar á Akranesi frá 1900 til 1930 og rakin saga húsanna og allra húsráðenda í tæplega 600 þáttum. Samkvæmt erindi sem Þorsteinn sendir Akraneskaupstað segir hann handrit að…Lesa meira

true

Fjórir Borgnesingar hlupu Laugaveginn

Hlaupahópurinn Flandri í Borgarnesi átti fjóra fulltrúa í hinu árlega Laugavegshlaupi sem fram fór síðastliðinn laugardag. Allir skiluðu sér í mark, þrátt fyrir fremur erfiðan mótvind mestan hluta leiðarinnar. Samtals lögðu 487 hlauparar af stað úr Landmannalaugum um morguninn og þar af komust 430 á leiðarenda í Þórsmörk innan tilskilinna tímamarka. Stefán Gíslason náði bestum…Lesa meira

true

Hlýnar á Vesturlandi eftir því sem líður á vikuna

Veður fer batnandi um vestanvert landið þegar líður á vikuna. Á morgun má búast við rigningu og roki en eftir það fer veður hratt skánandi. Á föstudag og laugardag verður hæg norðlæg átt, þurrt og bjart á Vesturlandi. Búðast má við að hiti fari yfir tuttugu stigin í innsveitum hér á Vesturlandi, en þá verður…Lesa meira

true

Víkingur og ÍA mætast í Vesturlandsslag í kvöld

Í kvöld verður leikið í elleftu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu og með því lýkur fyrri hluta Íslandsmótsins. Klukkan 18 í kvöld fer fram í Ólafsvík gríðarlega mikilvægur leikur þegar Vesturlandsliðin Víkingur og ÍA mætast. Erfiðlega hefur gengið hjá báðum liðum í deildinni og eru þau bæði í botnbaráttunni, Skagamenn í næstneðsta sæti með níu…Lesa meira

true

Góður árangur á Símamótinu

Símamótið í knattspyrnu var haldið í Kópavogi dagana 13.-16. júlí síðastliðna. Mótið er fyrir 5., 6., og 7. flokk stúlkna og er eitt stærsta knattspynumót sem haldið er á landinu á ári hverju, með um og yfir tvö þúsund þátttakendur. Ungar og upprennandi knattspyrnustúlkur úr Borgarnesi, Akranesi og af Snæfellsnesi tóku þátt og áttu góðu…Lesa meira

true

Eldislaxar meðal fiska úr íslenskum ám

Í Skessuhorni í síðustu viku var sagt frá veiði í nokkrum laxveiðiám. Meðal annars birtist mynd af Sólveigu Einardóttiur sem heldur á tveimur löxum sem hún hafði þá veitt í Straumunum í Borgarfirði. Mynd þessi vakti athygli áhugamanna um laxveiði þar sem annar laxinn var augljóslega ekki úr villtum stofni, heldur eldislax sem einhversstaðar hefur…Lesa meira

true

Flake verður áfram í Borgarnesi

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við reynsluboltann Darrell Flake um að spila áfram með liðinu á komandi keppnistímabili. Samhliða því að leika með liðinu verður Flake aðstoðarþjálfari, auk þess sem hann mun taka að sér þjálfun drengja- og unglingaflokks Skallagríms. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Flake er körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur. Hann…Lesa meira