
Hvalfjarðargöng voru lokuð um tíma síðdegis í dag eftir að eldur kom upp í bíl í göngunum að sunnanverðu. Talsverður viðbúnaður var eins og ætíð þegar eldur kviknar í jarðgöngum. Slökkvilið var sent á vettvang frá Akranesi, af Kjalarnesi, Mosfellsbæ og Tunguhálsi í Reykjavík, ásamt sjúkrabílum og lögreglu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og rýma göngin…Lesa meira








