Fréttir

true

Fjögurhundruð skátar á leið til Akraness

Íbúum Akraness mun fjölga umtalsvert í fáeina daga í næstu viku því dagana 25.-29. júlí munu fjögurhundruð skátar dvelja í bænum. Ástæðan er að eitt stærsta skátamót heims verður haldið á Íslandi. Mótið heitir World Scout Moot og er haldið í fimmtánda sinn í ár en mótið er haldið á fjögurra ára fresti fyrir skáta…Lesa meira

true

Orkustofnun sektar Orku náttúrunnar vegna meints tjóns á Andakílsá

Orkustofnun hefur sektað Orku náttúrunnar um eina milljón vegna ólögmætrar háttsemi við tæmingu á lóni um botnloku á stíflu Andakílsárvirkjunar. Forsaga málsins eru sú að Orkustofnun barst erindi 19. maí síðastliðinn vegna meints umhverfisskaða í Andakílsá af völdum Orku náttúrunnar við tæmingu inntakslóns Andakílsárvirkjunar þann 15.maí. Með tæmingunni var þúsundum rúmmetra af aur hleypt úr…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir í gangi í Snæfellsbæ

Í sumar hafa miklar framkvæmdir staðið yfir í Snæfellsbæ. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að meðal stærstu verkefnanna sé að Landsnet leggur nú háspennustreng í jörðu milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur en auk þess er unnið að lagningu ljósleiðara í Fróðarhreppi hinum forna. „Einnig er verið að leggja ljósleiðara á sunnanverðu Snæfellsnesi og…Lesa meira

true

Umferðarslys í Borgarnesi

Síðdegis í gær varð umferðarslys í Borgarnesi þegar erlend kona varð fyrir bíl á Borgarbrautinni. Slasaðist konan talsvert á fæti. Ekið var með hana í forgangsakstri lögreglu og sjúkrabíls á sjúkrahús í Reykjavík þar sem hún gekkst undir aðgerð.Lesa meira

true

Veðurspáin dregur nú úr líkum á blíðviðri vestanlands

Eins og gengur eru ekki allar veðurspár sem ganga eftir. Síðastliðinn mánudag var því t.d. spáð að eftir því sem liði á vikuna myndi sannkallað blíðviðri færast yfir vestanvert landið, með sól og hita. Nú hafa lægðir og hæð tekið annan pól í hæðina og kollvarpað þeirri spá. Mestu veðurblíðunni er nú spáð um norðaustanvert…Lesa meira

true

Auglýsa að nýju starf rektors LbhÍ

Háskólaráð Landbúnaðarháskóla Íslands hefur ákveðið að auglýsa að nýju starf rektors skólans laust til umsóknar. Eftir að háskólaráðið hafði móttekið niðurstöður valnefndar, í kjölfar þess að rektorsstaðan var auglýst í vor, kom í ljós að valnefnd hafði talið einn umsækjanda, Hermund Sigmundsson, hæfan til starfsins. Alls höfðu sex sótt um starfið. Hins vegar mun það…Lesa meira

true

Systur sem lifa og hrærast í torfærunni

Síðasta umferð Íslandsmótsins í torfæru verður haldin næstkomandi sunnudag í malargryfjunum í Fellsendalandi, norðan við Akrafjall. Sagt er frá keppninni í Skessuhorni vikunnar. Það er Torfæruklúbbur Suðurlands (TKS) sem stendur að keppninni. Margar hendur koma að undirbúningi slíkrar keppni en athygli vekur að TKS er eina aðildarfélag Akstursíþróttafélags Íslands með konu í formennsku, Helgu Katrínu…Lesa meira

true

Bygging Amtsbókasafns gengur vel

Í byrjun ágústmánaðar 2016 var tekin fyrsta skóflustungan að nýju Amtsbókasafni og skólabókasafni í Stykkishólmi. Framkvæmdir hófust skömmu síðar, en byggingin rís við hlið grunnskólans. Húsið er rúmir 500 fermetrar að stærð, teiknað af Arkitektastofunni OG. Það er Skipavík ehf. sem byggir og að sögn Sævars Harðarsonar, framkvæmdastjóra Skipavíkur, hefur verkið sóst vel. „Framkvæmdirnar ganga…Lesa meira

true

Rusl verður list

Aðstanendur listahátíðarinnar Plan B hafa náð samkomulagi við Borgarbyggð og Íslenska Gámafélagið um nýtingu á efni sem berst á gámastöðina við Sólbakka í Borgarnesi. Frá þessu er greint á heimasíðu Borgarbyggðar. Listamenn hátíðarinnar hafa því leyfi til að nýta efni sem berst á stöðina við listsköpun og þannig glæða gamla hluti nýju lífi. Má því…Lesa meira

true

Ættliðaskipti í Brekkukoti og ísgerð á næsta leiti

Ættliðaskipti eru framundan á bænum Brekkukoti í Reykholtsdal. Systkinin Halldóra Lóa og Helgi Eyleifur taka við búinu af foreldrum sínum, þeim Ólöfu Guðmundsdóttur og Þorvaldi Jónssyni. Samhliða því að taka við búskap hyggjast systkinin hefja framleiðslu á ís. Skessuhorn hitti Halldóru Lóu að máli fyrir helgi og ræddi við hana um fyrirhugaða ísframleiðslu í Brekkukoti.…Lesa meira