Fréttir

true

Kviknaði í bíl í göngunum

Hvalfjarðargöng voru lokuð um tíma síðdegis í dag eftir að eldur kom upp í bíl í göngunum að sunnanverðu. Talsverður viðbúnaður var eins og ætíð þegar eldur kviknar í jarðgöngum. Slökkvilið var sent á vettvang frá Akranesi, af Kjalarnesi, Mosfellsbæ og Tunguhálsi í Reykjavík, ásamt sjúkrabílum og lögreglu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og rýma göngin…Lesa meira

true

Skólphreinsistöðvar teknar í notkun á Akranesi og í Borgarnesi

Vegna umræðu um stöðu skólpmála og mengun á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu hafa íbúar í Borgarnesi og Akranesi kallað eftir upplýsingum um stöðu skólphreinsimála á þessum stöðum. Ólöf Snæhólm upplýsingafulltrúi Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur sem annast þessi mál á Akranesi og Borgarnesi, segir að nú sé búið að gangsetja hreinsistöðina á Akranesi og prófanir og gangsetning…Lesa meira

true

Átta íbúðir en ekki hæðir

Í myndatexta með frétt sem birt er í Skessuhorni í dag, og fjallar um íbúðabyggingar á Akranesi, var meinleg villa sem betra er að leiðrétt verði sem fyrst. Þar sagði: „Sökklar eru nú steyptir undir átta hæða fjölbýlishús sem Skarðseyri ehf. byggir við Akralund 2.“ Myndin sýnir Þráinn Gíslason byggingameistari og fleiri í sökklum hússins…Lesa meira

true

„Það þarf að hafa fyrir því að gera upp gamlan bíl“

Fagurblár Plymouth Concord, árgerð 1951, hefur sést allnokkrum sinnum á ferðinni í Reykholti og Borgarfirði í sumar. Bíllinn er í eigu Tryggva Konráðssonar í Reykholti, sem hefur haft veg og vanda að uppgerð hans, eins og reyndar fleiri fornbíla. „Ég fann þennan bíl á Ólafsfirði fyrir tveimur árum síðan. Fyrri eigendur höfðu gefist upp á…Lesa meira

true

„Auðvelt að verða ástfangin af þessum stað“

Álfheiður Sverrisdóttir starfar sem verkefnastjóri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún býr á Hvanneyri ásamt fjölskyldu sinni og hefur verið áberandi í samfélaginu í þorpinu undanfarin ár. Hún hefur verið í undirbúningsnefnd vegna Hvanneyrarhátíðarinnar, lagt sitt af mörkum í starfi Umf. Íslendings, Körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Kvenfélagsins 19. júní. Þá var hún var formaður Íbúasamtaka Hvanneyrar og nágrennis…Lesa meira

true

„Ætlaði mér að komast í landsliðshóp“

Körfuboltamaðurinn Bjarni Guðmann Jónsson er einn af efnilegri íþróttamönnum Vesturlands um þessar mundir. Bjarni er átján ára en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið fastamaður í liði Skallagríms síðustu tvö tímabil en hann hóf að leika með liðinu árið 2015, þá aðeins sextán ára gamall. Bjarni Guðmann var valinn í U18 ára landslið Íslands…Lesa meira

true

Mætti í hlaðið á báðum Snorrahátíðunum

Willy‘s jeppinn með skrásetningarnúmerinu M-28 er nú í eigu Ólafs Helgasonar formanns Fornbílafjelags Borgarfjarðar. Bíll þessi á sér sögu víðsvegar úr héraðinu. Hann var upphaflega í eigu séra Bergs í Stafholti sem fékk hann vorið 1947, en bíllinn er skráður árg. 1946. Síðastliðinn laugardag var bílnum ekið á Snorrahátíð í Reykholti, en það hafði einmitt…Lesa meira

true

Hundrað íbúðir í byggingu og undirbúningi á Akranesi

Nú eru á ýmsum byggingastigum og í smíðum 48 íbúðir í alls fimm fjölbýlishúsum á Akranesi. Auk þess er talsverður fjöldi einbýlis-, par- og raðhúsa í byggingu eða í undirbúningi, flest við Eyrarlund og Blómalund. Loks verður á næstu vikum byrjað að grafa fyrir 37 íbúða fjölbýlishúsi við Stillholt 21. Að því meðtöldu verða um…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá SFÚ vegna veiðileyfagjalds

Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) telja ákvörðun sjávarútvegsráðherra um veiðileyfagjöld á árinu 2017 ekki til þess fallna að auka framboð af fiski inn á fiskmarkaði. SFÚ óttast að ákvörðunin verði til þess að veikja og stofna jafnvel í hættu rekstri einyrkja í útgerð, sem fram til þessa hafa verið einna ötulastir í að selja afla…Lesa meira

true

Andlát – Ólafur H. Torfason

Ólafur H. Torfason, rithöfundur, fjölmiðlamaður og kvikmyndafræðingur, er látinn, tæplega sjötugur að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 27. júlí 1947. Hann varð stúdent frá MR 1969 og stundaði nám í kvikmynda- og fjölmiðlafræði við Kaupmannahafnarháskóla 1970-73. Ólafur starfaði meðal annars sem kennari, fjölmiðlamaður, kvikmyndafræðingur og kvikmyndagagnrýnandi. Auk þess lagði hann stund á myndlist og fékkst…Lesa meira