
Veröld
Veröld – Safn


Á síðustu vikum höfum við áþreifanlega fengið að finna fyrir duttlungum veðráttunnar. Hver lægðin á fætur annarri hafa vaðið yfir landið og fært með sér hvassviðri og hryssingslegt veður. Ástæðuna segja veðurfræðingar þá að tveir köldustu kjarnarnir yfir stóru meginlöndunum hafa komið sér í þægilega stöðu og dæla lægðum á færibandi til okkar. Annar þessara…Lesa meira

Borgfirðingurinn og tónlistarkonan Steinunn Þorvaldsdóttir frá Hjarðarholti gaf á föstudaginn út plötuna Vísur. Þar má finna níu frumsamin kórverk eftir Steinunni sem tekin voru upp í Reykholtskirkju í nóvember og í Seltjarnarneskirkju í janúar. Jón Sigurður Snorri Bergsson sá um upptökur en Borgfirðingarnir Gunnar Árni Hreiðarsson og Jakob Grétar Sigurðason hljóðunnu eina lagið sem er…Lesa meira


Fastlega má gera ráð fyrir að fréttir veki mismikinn áhuga eins og gengur. Fréttamat hvers og eins byggir jú á persónulegum áhuga eða hagsmunum gagnvart viðfangsefninu og snerta okkur því misjafnlega. Það er auðvelt að nefna dæmi. Þeim sem fylgjast með fótbolta finnst vafalítið spennandi að lesa frétt á forsíðu Skessuhorns vikunnar um það hvernig…Lesa meira

Ærin Sameining á bænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal kom bændum þar á óvart mánudaginn 16. mars þegar hún bar þremur myndar lömbum. Móður og afkvæmum heilsast vel. Jarðirnar Háafell í Skorradal og Snartarstaðir í Lundarreykjadal liggja saman og þar gengur féð af bænum. Við fósturtalningu fyrr í vetur hafði þó komið í ljós að Sameining væri…Lesa meira


Heimsfriðurinn stendur veikar en hann hefur gert um langa hríð og mögulega hefur fólk ekki lifað viðsjárverðari tíma í átta áratugi. Áhrifa þessa gætir með ýmsum hætti. Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar til að mynda eins og enginn væri morgundagurinn og styttist í að verðið fyrir bensínlítrann nái sömu upphæð og var fyrir kílómetragjald ríkisstjórnarinnar um…Lesa meira


Það bar heldur betur til tíðinda hér á landi síðasta föstudag. Þá hélt þríeykið sem heldur um stjórnartaumana við Austurvöll blaðamannafund. Kynnt var þyngslályktunartillaga þess efnis að gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst í sumar, á sjálfan höfuðdaginn. Þar verður þjóðin beðin að taka afstöðu til spurningarinnar: „Á að halda áfram viðræðum um aðild…Lesa meira