Veröld

Veröld – Safn

true

Sýnir stemningsmyndir af Skaganum

Kristján Söbeck opnar ljósmyndasýningu í Akranesvita í dag, fimmtudaginn 30. apríl. Kristján bjó á Ísafirði í 10 ár en er nú búsettur á Akranesi. Hann var meðal annars fréttamaður fyrir RÚV á Vestfjörðum og hefur marga fjöruna sopið. Kristján fluttist eftir dvölina á Ísafirði til Reykjavíkur, bjó þar um tíma en fluttist síðan á Akranes…Lesa meira

true

Viljayfirlýsingar

Ekki hef ég tölu á hversu oft ég hef heitið sjálfum mér því að eiga aldrei eftir að skrifa leiðara þegar kemur fram á lokadag blaðs á þriðjudegi. Að skrifa ritstjórnarpistil undir álagi þegar jafnvel er búið að vinna allar aðrar síður blaðsins, er hrein og klár ávísun á léleg og hroðvirknisleg skrif. Engu að…Lesa meira

true

Annatími fer í hönd

Framundan er gróandinn og vorið með öllu því sem árstímanum fylgir. Smábátasjómenn gera báta sína klára, bændur safna orku fyrir sauðburð og skólafólk er margt á leið í prófatörn eða verkefnavinnu. Í sveitunum er fram undan sauðburður og talsverð törn hjá bændum sem eiga margt fé. Á þessari mynd eru ærnar Fura og Krækja á…Lesa meira

true

Gleðilegt sumar!

Í dag er síðasti dagur vetrar og sumarið handan við hornið. Þetta er uppáhalds árstíminn minn, reyndar ef frá er talið tímabil síðsumars ef ber hafa náð að spretta. Alltaf er jafn áhugavert að vera úti á þessum tíma árs og upplifa lífið kvikna. Ég var í fyrradag staddur í sveitinni minni. Af palli sumarkofans…Lesa meira

true

Sýna Brotabrot í Safnahúsi

Síðastliðinn laugardag var opnuð í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi sýningin Brotabrot. Þar sýnir listahópurinn Arkir fjölbreytt úrval bókverka. Hópinn skipa: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdótttir, Kristín Guðbrandsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir. Verkin á sýningunni sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið…Lesa meira

true

Báru birtuna inn í húfunum

Svo virðist sem þjóðvegir landsins ætli að koma sérlega illa undan vetri. Víða eru að koma í ljós holur með hvössum brúnum þannig að fólk sprengir jafnvel dekkin á bílum sínum ef það gætir ekki að sér. Þegar allt er komið í óefni mæta svo velviljaði starfsmenn ríkisins með hjólbörur og handskóflur og moka kaldbiki…Lesa meira

true

Ætla alla leið í Söngkeppni framhaldsskólanna

IceGuys New generation og Krumla verður framlag MB Strákabandið IceGuys New gereration er skipað þremur hressum og hæfileikaríkum strákum í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þetta eru þeir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, Þorsteinn Logi Þórðarson og Kristján Karl Hallgrímsson. Þeir tóku þátt í undankeppni MB í janúar fyrir Söngkeppninna og báru sigur úr býtum með lagið…Lesa meira